ER MELTINGARFLÓRAN Í LAGI?

ER MELTINGARFLÓRAN Í LAGI?

Ég veit ekki með þig, en mér finnst alltaf eitthvað vanta ef ég tek ekki góðgerla daglega. Í nýrri og breyttri tíðni á Jörðinni finnst mér líka mikilvægt að fylgjast með því nýjasta sem er í boði hvað varðar góðgerla, því líkaminn samsamar sig því sem tekið er dag eftir dag og því er mikilvægt að skipta annað slagið um tegund.

ÖRVERUFLÓRA ÞARMANNA

Til að viðhalda jafnvægi á örveruflóru þarmanna er mikilvægt að tryggja að í þeim sé nægilega mikið af jákvæðum góðgerlum á móti óæskilegum bakteríum sem við viljum ekki hafa þar, svo að jafnvægi ríki. Góðgerlarnir stuðla að niðurbroti og upptöku fæðunnar og eru því mjög mikilvægir fyrir meltingarferlið hjá okkur.

NÝ TÆKNI MEÐ TVÖFALDA VIRKNI

FLORASSIST GI góðgerlarnir eru framleiddir með nýrri tækni, þannig að gerlarnir eru í tvöföldu hylki. Ytra hylkið brotnar niður í meltingarvökva magans – og tryggir þannig að það hylki sem er með virku efnin komist niður í smáþarma og brotni ekki niður fyrr en það er komið þangað sem það á að virka.

FLORASSIST GI góðgerlarnir gera eftirfarandi fyrir þarmaflóruna:

  • Ráðast á óæskilegar bakteríur með nýrri gerlaætu tækni.
  • Stuðla að því að viðhalda góðri meltingu og upptöku næringarefna.
  • Í þeim er ný blanda af sjö mismunandi góðgerlum sem í eru 15 billjón þyrpingamyndandi einingar.
  • Tvöfalt hylki sem gerir það að verkum að góðgerlarnir ná örugglega til smáþarmanna.

Neytendaupplýsingar: Þú færð FLORASSIST GI góðgerlana í versluninni Betri Dagar á Urriðaholtsstræti 24 í Garðabæ eða á vefsíðunni www.betridagar.is

– Lesendur greina minna geta nýtt sér afsláttarkóðann – gb23 – til að fá 15% afslátt á greiðslusíðu.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.

Þér er velkomið að skrá þig á PÓSTLISTANN minn. Allir nýjir áskrifendur fá ókeypis netútgáfu af bók minn LEIÐ HJARTANS þegar þeir skrá sig.

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN