DRAUMUR Í DÓS
Hefurðu ekki heyrt orðatiltækið að eitthvað sé „alger draumur í dós“? Ég minnist þess að hafa heyrt það nokkuð oft í gegnum tíðina, meira þó þegar ég var yngri. Svo breytist málfarið og eitthvað annað tekur við til að lýsa því sem er gott, æðislegt, frábært og svo framvegis.
MÍNAR DRAUMADÓSIR
Ég á mér tvær draumadósir sem eru alltaf á vinnuborðinu mínu. Ég vel að hafa þær þar vegna þess að þá er svo stutt að teygja sig í þær. Í þeim er áburður frá Dr. Bronner‘s sem framleiðir einungis lífrænar vörur.
Í grunninn eru áburðirnir í þeim báðum mjög líkir, blanda af olíum eins og avókadóolíu, jojobaolíu, kókosolíu, ólífuolíu og hempolíu. Sá áburður sem er lyktarlaus er frábær á húðvandamál eins og til dæmis þurra eða viðkvæma bletti á húð og hentar fyrir alla aldurshópa, allt frá ungbörnum og uppúr og er sérlega græðandi.
Sumir nota vaselín á slíka bletti, en að mínu mati er þessi áburður mun betri því að það er ekki jarðolía í honum.
VINNUR Á VERKJUM
Hin draumdósin mín er með mjög svipaðan grunn en í áburðinn hefur verið bætt arniku, sem gjarnan hefur verið notuð við tognun og vöðvaverkjum og mentóli, en það er unnið úr piparmyntuolíu og hefur kælandi áhrif.
Ég nota þann áburð á vöðvana ef þeir eru aumir eftir æfingar með handlóðum og eins á aum liðamót. Einnig hef ég borið hann á hálsinn ef hann verður stífur eftir miklar setur við tölvuna eða á axlarvöðva ef þeir verða stirðir og stífir – sem þeir verða stundum ef ég gleymi að standa upp frá tölvunni í langan tíma.
KÆLANDI OG ÁHRIFARÍKUR
Draumadósin með arnikunni og mentólinu er líka góð á ýmsa taugatengda verki eins og fólk fær stundum í fótleggina. Þar sem mentólið er kælandi þarf samt að gæta þess að ef áburðurinn er borinn á mjög stór svæði, getur líkaminn kólnað aðeins.
Eina sem í raun þarf að passa sig á með þessa áburði er að bera nógu lítið á húðina í einu, því þeir dreifast vel, svo minna er meira í þeirra tilviki.
Neytendaupplýsingar: Þú finnur þessar draumadósir í Mamma Veit Best á horni Dalbrekku og Auðbrekku í Kópavoginum eða í versluninni á Njálsgötu 1 í Reykjavík.
Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.
Myndir: CanStockPhoto/rolffimages og mynd sem ég tók af mínum draumadósum
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR

