AÐ LIFA Í AUGNABLIKINU
Það er afar auðvelt að fara í gegnum lífið, án þess að vera nokkurn tímann til staðar í augnablikinu – eða núinu eins og sumir vilja kalla það. Dægradvöl margra felst í því að rifja upp hluti úr fortíðinni og bregðast við lífinu út frá þeim minningum eða að bíða eftir einhverju sem á að verða í framtíðinni, þótt líkamlega sé í raun ómögulegt að vera annars staðar en í augnablikinu.
Við getum ekki gengið út um dyrnar heima hjá okkur á morgnana og tekið beygju til vinstri inn í maí á síðasta ári, frekar en að við getum tekið beygju til hægri inn í maí á næsta ári.
Með því að vera alltaf með hugann við það sem var eða velta fyrir sér því sem verður missum við af því að njóta þess sem er í boði í augnablikinu.
ATHYGLIN Í AUGNABLIKINU
Til að geta notið þess að vera í augnablikinu er mikilvægt að leggja sig fram um að vera meðvitaður og opinn fyrir því sem er að gerast í kringum mann. Það gerir okkur kleift að taka á móti því sem lífið er að færa okkur hverju sinni, hvað sem það er.
Þegar við erum fullkomlega meðvituð í augnablikinu er hugur okkar ekki á flakki út um allt. Við erum með athyglina á því sem er að gerast einmitt þar sem við erum stödd, í stað þess til dæmis að vera með athyglina á því sem á að kaupa inn í kvöldmatinn eða hvernig á að elda hann – eða hvað við ætlum að gera þegar við komum heim úr vinnunni.
Þegar við höldum okkur í augnablikinu, erum við að lifa lífinu á annan hátt en í gegnum gamlar minningar eða draumóra um hvar við ætlum að vera í framtíðinni. Það er ekkert að því að gera plön um framtíðina, en það er gott að halda áfram að vera þar sem maður er hverju sinni, meðan unnið er að því að láta plönin verða að veruleika skref fyrir skref.
LÍFIÐ FLÆÐIR ÁFRAM
Þegar við byrjum að beina athygli okkar að hverju augnabliki fyrir sig getur það virst svolítið yfiþyrmandi, því það er eitthvað alveg nýtt. Það getur verið ágætt að æfa sig þegar maður situr fastur í umferðateppu. Allir í kringum mann eru að flýta sér, þar með talinn maður sjálfur.
Allir eru með þandar taugar, óþolinmóðir og vilja að allt gangi hraðar en það gerir. En með því að anda inn og út í gegnum HJARTAÐ eins og það sé lunga, kyrrum við líkamann og hugann og slökum á.
Það auðveldar okkur að skynja að við erum í bílnum, en ekki komin á áfangastað. Við erum enn á leiðinni og getum virt fyrir okkur umhverfið, skoðað litina á bílunum í kringum okkur eða velt fyrir okkur af hvað tegund þeir eru – og samhliða því haldið okkar eigin innri ró.
Lífið flæðir áfram augnablik eftir augnablik og við getum bara notið þess til fullnustu ef við höldum okkur þar. Hvert augnablik verður mikilvægara ef við munum að GLEÐJAST yfir því sem er, erum ÞAKKLÁT fyrir allt sem við höfum og sendum KÆRLEIKSRÍKA orku út til allra í kringum okkar.
Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.
Þú getur skráð þig á PÓSTLISTANN til að fá reglulega sendar greinar um náttúrulegar leiðir til að efla heilsuna.
Mynd: CanStockPhoto/LeniKovaleva
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR

