NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Venus og Merkúr fara beint fram á við og Alheimurinn er með okkur í liði
Í nóvember 2026 fáum við kærkomna og verðskuldaða hvíld frá álaginu.
Október var SPENNUÞRUNGINN. Nóvember lítur út fyrir að ætla að verða rólegri. Úranus er í nákvæmri 120 gráðu samhljóma afstöðu við Plútó, Venus er í sextíu gráðu samhljóma afstöðu bæði við Júpíter og Mars nánast allan mánuðinn, auk þess sem stór þríhyrningur myndast í eldmerkjunum – og margt fleira.
Venus og Merkúr eru enn á ferð aftur á bak fyrri hluta mánaðarins, en þau fara bæði beint fram á við – sama daginn – þann 13. nóvember. Það er svo sannarlega stórmál þegar tvær persónulegar plánetur breyta um stefnu sama dag, því áhrifin magnast.
Við finnum sterkt fyrir því að hlutirnir eru farnir að hreyfast fram á við. Loksins sjáum við ljósið við enda ganganna – og hvert allar þrautir og raunir síðustu mánaða hafa verið að leiða okkur.
Í nóvember verður líka sjaldgæf þreföld samstaða Mars, Júpíters og Suðurnóðunnar í Ljóni, auk tveggja viðburðaríkra Tunglviðburða – bæði nýtt og fullt Tungl – þar sem Fulla Tunglið er í samstöðu við Úranus.
Það er alveg á hreinu að það MUN ýmislegt gerast í nóvember.
En skoðum nú mikilvægustu afstöður mánaðarins.
VENUS Í SEXTÍU GRÁÐU AFSTÖÐU VIÐ JÚPÍTER
Þann 4. nóvember er Venus, á 24° í Vog, í sextíu gráðu samhljóma afstöðu við Júpíter á 24° í Ljóni. Hjartað opnast og okkur fer aftur að finnast allt mögulegt.
Venus hefur ekki átt sjö dagana sæla í langan, langan tíma. Hún hefur verið slípuð niður af spennu-afstöðum við Plútó og andstöðum við Chiron, með afar lítinn stuðning í ferlinu. Venus hefur því lagt mikið á sig – horfst í augu við óþægilegan sannleika, hreinsað burt gömul tengsl og staðið andspænis því sem við hefðum helst viljað sleppa við að sjá.
En nú er erfiðasti hjallinn að baki, því Venus myndar loksins sína fyrstu raunverulega styðjandi afstöðu – og ekki við hvaða plánetu sem er, heldur við sjálfan stóra gæfuboðann, guð allra guða, Júpíter! Þar sem Venus fer hægt yfir og er að breyta um stefnu verða áhrif sem venjulega vara í einn til tvo daga að einni af afstöðunum sem setja svip sinn á allan mánuðinn. Í raun er allur nóvember baðaður glaðri og bjartsýnni orku Venusar og Júpíters.
Eftir allt sem Venus hefur gengið í gegnum minnir þetta ferli okkur á að lífið snýst ekki bara um að horfast í augu við óttann, mæta skuggahliðum okkar og vinna erfiðu verkin.
Það snýst líka um að tengjast fólkinu sem við elskum og muna hvað það er sem gerir lífið þess virði að lifa því.
MERKÚR Í SAMSTÖÐU VIÐ SÓL
Þann 4. nóvember er Merkúr, sem er á ferð aftur á bak, í samstöðu við Sólina á 12° í Sporðdreka. Merkúr er þá í hjarta Sólar (cazimi). Samstaða Sólar og Merkúrs markar upphaf nýs Merkúrhrings. Þegar Sólin og Merkúr „takast í hendur“ á himninum verður eitthvað skýrt varðandi tilgang okkar og það hver við erum.
Gefðu gaum að innsæi þínu, og líka fréttum, samtölum, hugdettum eða að því sem virðast „tilviljanakenndar“ upplýsingar en höfða til þín af einhverjum ástæðum. Eitthvað sem virtist ekki skipta máli áður, gæti reynst vera púslið sem vantaði.
NÝTT TUNGL Í SPORÐDREKA
Þann 9. nóvember kviknar Nýtt Tungl á 17° í Sporðdreka. Þetta er frekar spennuþrungið Tungl, því það er í níutíu gráðu spennuafstöðu við sinn eigin stjórnanda, Mars, sem nú er í Ljóninu. Það sem er áhugavert er að Mars og Sólin eru í gagnkvæmri móttöku, svo í þetta sinn verður núningurinn frá Mars að hvata til aðgerða, fremur en að hann skapi einfaldlega átök.
Mars er líka í sextíu gráðu samhljóma afstöðu við Venus og á leið inn í samstöðu við Júpíter. Hér felast raunverulegir möguleikar á að hlutirnir þokist í jákvæða átt og opni dyr sem okkur hefði jafnvel ekki órað fyrir. En það er einn hængur á: við þurfum að vera heiðarleg við okkur sjálf um hvað við raunverulega viljum – og nógu hugrökk til að sækjast eftir því. Alheimurinn gefur okkur byr undir báða vængi, en það er okkar að taka fyrsta skrefið.
MERKÚR OG VENUS BREYTA UM STEFNU SAMA DAG
Þann 13. nóvember stöðvast bæði Merkúr og Venus til að breyta um stefnu og fara beint fram á við. Merkúr breytir um stefnu á 5° í Sporðdreka og Venus á 22° í Voginni.
Síðustu fjörutíu daga og rúmlega það höfum við þurft að vinna úr MJÖG miklu og velta mörgu fyrir okkur. Það sem við höfðum ekki leitt hugann að, og það sem við höfðum í gegnum tíðina sópað undir teppið, hefur allt komið upp á yfirborðið – eins og yfirfullt holræsi sem afhjúpar það sem hafði legið og rotnað undir niðri. Og við áttum ekki annarra kosta völ en að takast á við það.
Þetta hefur ekki verið auðvelt. Sum erfiðasta vinnan fer fram í kyrrþey – þegar við sitjum með óþægilegum tilfinningum, viðurkennum sannleika sem við vildum helst forðast og tökum ábyrgð á því sem við kenndum áður öðrum um.
En við höfum unnið vinnuna. Við höfum horfst í augu við það sem við gátum hingað til ekki horfst í augu við og skilið það sem við gátum ekki skilið áður.
Og nú, þegar bæði Merkúr og Venus fara beint fram á við, erum við hætt að grafa í fortíðinni. Við höfum séð það sem við þurftum að sjá, og eina leiðin sem eftir er liggur fram á við.
SAMSTAÐA VIÐ JÚPÍTER OG SUÐURNÓÐUNA
Þann 16. nóvember myndar Mars samstöðu við Júpíter og Suðurnóðuna á 26° í Ljóni. Svona þrefaldar samstöður eru afar sjaldgæfar og við höfum ekki verið með jafn þétta samstöðu milli þessara pláneta og Nóðunnar í meira en hundrað ár. Það sem gerir þessa afstöðu enn sérstakari er að samstaða Mars, Júpíters og Suðurnóðunnar er líka í nákvæmri sextíu gráðu samhljóma afstöðu við Venus í Voginni.
Ef ferli Venusar aftur á bak hefur hjálpað okkur að uppgötva hvað hjarta okkar raunverulega þráir síðustu fjörutíu daga, þá gefa Mars og Júpíter okkur nú orkuna og hugrekkið til að fylgja því eftir. Suðurnóðan (fortíð okkar) virkar eins og öryggisventill – hún hjálpar okkur að sleppa tökum á gömlum mynstrum, ótta og tengslum sem hafa staðið okkur fyrir þrifum.
SÓLIN FER INN Í BOGMANNINN
Þann 22. nóvember fer Sólin inn í Bogmanninn, en hann getur bæði verið draumórakenndur og sannleiksleitandi. Á vissan hátt lýsir Bogmannsorkan upp þetta tímabil ársins, því á þessum tíma halda margir á Vesturlöndum upp á þakkargjörðarhátíðina og fara að hlakka til jólaundirbúningsins. Flestir menningarheimar eiga sínar eigin leiðir til að fagna þessum árstíma með bjartsýni og von um það sem framundan er.

FULLT TUNGL Í TVÍBURUM
Þann 24. nóvember verður Tunglið fullt á 2° í Tvíburum – í samstöðu við Úranus!! Þetta er MJÖG kraftmikið, nánast sprengifimt fullt Tungl, sem á örugglega eftir að hrista af okkur slenið sem kann enn að sitja í okkur eftir nýja Tunglið, sem var þó þegar hlaðið orku frá Mars.
Fulla Tunglið er ekki bara í samstöðu við Úranus, heldur líka í níutíu gráðu spennuafstöðu við Mars, í 120 gráðu samhljóma afstöðu við Plútó og í sextíu gráðu samhljóma afstöðu við Neptúnus. Það virkjar beint litla þríhyrninginn sem ytri pláneturnar þrjár – Úranus, Neptúnus og Plútó – mynda, og leggur áherslu á hlið Úranusar.
Orð verða sögð, sannleikurinn kemur í ljós og ekkert verður eins og áður. Úranus sér heildarmyndina, sýnina um það sem gæti orðið – og á fullu Tungli í Tvíburum fáum við tækifæri til að stíga óhikað inn í þá framtíð.
MARS FER INN Í MEYJUNA
Þann 25. nóvember fer Mars inn í Meyjuna. Þegar Mars er í Meyjunni er lokið við hlutina. Hugsaðu þér drifkraft og úthald Mars ásamt skilvirkni Meyjunnar, nákvæmni hennar og heilbrigðrar skynsemi við að leysa vandamál. Við fáum svo sannarlega næg tækifæri til að nýta þessa eiginleika.
Snemma á næsta ári stöðvast Mars á 11° í Meyju og fer á ferð aftur á bak. Hann dvelur því óvenju leeengi í merkinu og gefur okkur hvert tækifærið á fætur öðru til að laga það sem ekki virkar, einfalda það sem gæti gengið betur og gera raunverulegar umbætur á því sviði sem Meyjan stjórnar í kortinu okkar.
VENUS Í SEXTÍU GRÁÐU AFSTÖÐU VIÐ JÚPÍTER
Þann 28. nóvember verður seinni sextíu gráðu afstaða Venusar og Júpíters nákvæm, í þetta sinn á 27° í Vog annars vegar og í Ljóni hins vegar. Pláneturnar tvær hafa verið í sextíu gráðu afstöðu nánast allan mánuðinn og þetta er lokahnykkurinn – hápunktur umferðar sem hefur staðið yfir í heilan mánuð.
Nú er tíminn til að virkja alla þessa góðu orku – og gera gnægðina, gleðina og bjartsýnina að hluta af lífi okkar. Ekki bara sem stundartilfinningu, heldur sem nýja „reglu“ sem við kjósum að lifa eftir.
Til er máltæki sem segir: „Mikilvægasta ákvörðun sem þú tekur á ævinni er að ákveða hvort Alheimurinn sé þér fjandsamlegur eða vinveittur.“ Trú okkar mótar hvernig við sjáum heiminn, hvers við væntum af lífinu og á endanum fyrir hverju við erum tilbúin að opna okkur.
Hvers vegna ekki að velja að trúa því að lífið sé með okkur í liði? Að góðir hlutir geti hent okkur? Að við eigum skilið að vera hamingjusöm?
ÚRANUS Í 120 GRÁÐU AFSTÖÐU VIÐ PLÚTÓ
Þann 29. nóvember verður kannski mikilvægasta afstaða mánaðarins: nákvæm 120 gráðu samhljóma afstaða milli Úranusar og Plútós. Afstöður milli þessara tveggja hægfara pláneta eru sjaldgæfar – og þess vegna mikilvægar. Við finnum kannski ekki fyrir þeim á sama hátt og þegar Venus og Merkúr breyta um stefnu, eða við samstöðu Mars og Júpíters, en áhrif þeirra eru víðtæk og langvarandi.
Ytri pláneturnar eru aflvakarnir á bak við tjöldin. Þær endurskrifa reglurnar og skapa þær stóru breytingar sem móta heiminn sem við búum í. Þegar Úranus og Plútó vinna saman í samhljóma 120 gráðu afstöðu finnum við að framtíðin er að opnast og að breytingarnar sem við gerum núna eru hluti af einhverju miklu stærra.
Hvað sem það er sem þú ert tilbúin/n að breyta eða halda áfram með í nóvember, þá er stjörnuspekin með þér í liði. Ef þú hefur beðið eftir merki um að nú sé kominn tími til að taka næsta skref, þá er þetta merkið. Njóttu nóvember mánaðar!
——————————
Heimild: Þýtt og endursagt upp úr grein af AstroButterfly.com – Guðrún Bergmann
Myndir: Kort fyrir nýtt Tungl í Sporðdreka og Fullt Tungl í Tvíburum – Mynd frá Shutterstock.com
- Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum!
- Ef þú átt ekki STJÖRNUKORT – GETURÐU PANTAÐ ÞÉR KORT HÉR
- Skráðu þig á PÓSTLISTANN minn til að missa ekki af greinum frá mér!
Fleiri nýlegar greinar tengdar störnuspeki:
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR

