TEA TREE OLÍA ER BAKTERÍUDREPANDI

TEA TREE OLÍA ER BAKTERÍUDREPANDI

Tea Tree ilmkjarnaolían er unnin úr Melaleuca alternifolia trénu (eða runnanum – á ekkert skylt við runna sem telauf vaxa á), sem vex í Queensland og New South Wales í Ástralíu. 

Dr. Gabriel Cousens er einn af þeim sem mælir með Tea Tree olíu sem vírusvörn, en hún hefur verið notuð til lækninga meðal frumbyggja í Ástralíu öldum saman. 

Hér að neðan eru upplýsingar um FIMM leiðir til að nota Tea Tree olíuna á þann máta, en einnig má alltaf nota hana á skordýrabit og lítil sár til sótthreinsunar. Ekki á að drekka Tea Tree olíuna.

1 – TIL INNÖNDUNAR

Setjið nokkra dropa af Tea Tree olíu út í skál eða pott með heitu vatn, setja handklæði yfir höfuðið og ílátið sem vatnið er í og andið að ykkur gufunni frá vatninu. Innöndun sem þessi drepur bakteríur í nefi og munni og er góð við hósta og kvefi. 

Tea Tree olían inniheldur nokkur efnasambönd, meðal annars terpinen-4 ol. Það efni getur drepið ákveðnar bakteríur, vírusa og sveppi. Auk þess virðist terpinen-4-ol auka virkni hvítu blóðfrumanna, sem berjast gegn sýklum og öðrum hættulegum innrásaraðilum í líkamann

2 – SEM HANDHREINSIR

Tea Tree olía er frábær í handhreinsi, því olíana drepur bakteríur eins og E.coli, S.pneumoniae og H.influenzae og bakteríur sem geta valdið kvefi, flensu og öðrum sjúkdómum. Hægt er að útbúa sér handhreinsir úr Tea Tree olíu svona:

Innihaldsefni:

  • 5-10 dropar af Lavender ilmkjarnaolíu
  • 30 dropar af Tea Tree ilmkjarnaolíu
  • 1 dl af sterkum vodka – eða sótthreinsispritti úr apóteki
  • 30 gr af hreinu aloe vera geli
  • ¼ teskeið E-vítamín olía (má skera á E-vítamínhylki til að fá þennan skammt – en E-vítamín olían hefur mýkjandi áhrif á hendurnar).

Aðferð:

  • Blandið ilmkjarnaolíunum og E-vítamín olíunni saman í lítilli glerskál.
  • Bætið áfenginu út í og blandið vel saman.
  • Bætið þessari blöndu vel saman við aloe vera gelið.
  • Setjið í skömmtunabrúsa/flösku og notið eftir þörfum. Má gjarnan vera litaður brúsi/flaska til að ilmkjarnaolíurnar fái ekki of mikla birtu á sig. 
  • Hristist fyrir hverja notkun. Handhreinsirinn ætti að endast í nokkra mánuði, þar sem E-vítamín olían og áfengið virka sem rotvarnarefni.

3 – SEM MUNNSKOL

Tea-Tree olían er sérlega góð í munnskol, því hún vinnur vel á munnangri og sveppagróðri í munni. Hægt er að setja 2-3 dropa í ½ glas af köldu vatni og skola munninn nokkrum sinnum með því – eða setja 1-2 dropa út í lítinn bolla af volgu vatni og skola munninn reglulega þannig.

Einnig er gott að bursta tennurnar með góðum flúorlausum tannkremum eins og til dæmis frá Dr. Bronner‘s, sem fást í nokkrum bragðtegundum.

4 – SEM ALHLIÐA HREINSIEFNI FYRIR HEIMILIÐ

Tea Tree olían er frábær sem alhliða hreinsiefni fyrir heimilið því hún sótthreinsar allt yfirborð, án þess að skilja eftir sig kemísk efni sem geta skaðað fjölskyldumeðlimi eða gæludýr.

Aðferð:

  1. Blandið 20 dropum af Tea Tree olíu saman við ¾ bolla af vatni og ½ bolla af eplaediki í úðabrúsa.
  2. Hristið efnin rólega saman.
  3. Úðið beint á það yfirborð sem á að hreinsa og þurrkið yfir með hreinum, þurrum klút.
  4. Gætið þess að hrista brúsann fyrir hverja notkun, til að blanda Tea Tree olíunni saman við hin innihaldsefnin.

 5 – Í ÞVOTTAVÉLINA

Setjð 2-3 dropa af Tea Tree olíu út í þvottavélina þegar þið eruð að þvo þvott við lágt hitastig eða handklæði og viskastykki við 60°-65°C. 

Lágt hitastig á vatni þegar þvegið er drepur ekki bakteríur og gerla sem setið geta í fötum manns, en Tea Tree olían gerir það.

Inni á vefsíðunni minni er hægt að sækja sér ókeypis E-bók sem heitir TÓLF RÁÐ TIL AÐ STYRKJA ÓNÆMISKERFIÐ OG VERJAST BRODDPRÓTÍNI.

Neytendaupplýsingar: Tea Tree ilmkjarnaolían fæst í heilsuvörudeildum matvörumarkaða, í heilsuvöruverslunum eins og Mamma Veit Best, Heilsuhúsinu og Heilsuveri.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.

Heimildir: Meðal annars úr grein á Healthline 

Myndir: CanStockPhoto /marrakeshh – arnylv – robbiverte

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN