SÍRÍUS OG HLIÐ LJÓNSINS
Í dulrænum fræðum hefur lengi verið talað um orkuhliðið 8:8 eða þann áttunda dag áttunda mánaðar ársins. Í þessar grein fjalla ég um þetta orkuhlið bæði út frá stjörnuspeki og talnaspeki og blanda auðvitað hinu dulræna við líka.
Neðst í greininni er svo hlekkur inn á hugleiðslu sem gott er að nota daglega á þessum tíma árs.
SÍRÍUS ER ANDLEGA SÓLIN
Frá því seint í júnímánuði hefur fastastjarnan Síríus verið að rísa með sólinni, en skært ljós hennar hefur verið hulið geislum Sólarinnar. Í dulrænum fræðum er SÍRÍUS talin vera hin ANDLEGA SÓL og hefur löngum verið litið á hana sem hliðið til himnanna, þar sem verur á hærri tíðni dveldu.
Þegar Sól og Síríus eru í samstöðu, magnast orka annars geisla, samkvæmt geislafræði dulspekinnar, upp og streymir frá Síríusi. Annar geislinn vinnur með hjartaorkustöðinni og hóstarkirtlinum (hærri hjartaorkustöðin) og ber með sér eiginleika KÆRLEIKA og VISKU.
Um þetta leyti árs fer Síríus að sjást aftur á austurhimni rétt fyrir sólarupprás. Það kallast sólfylgisris Síríusar og á sér stað þegar Sólin er að fara í gegnum Ljónsmerkið, en það er það stjörnumerki sem stjórnar hinum efnislega hjarta okkar.
Síríus er einnig í dulrænum fræðum þekkt fyrir að lýsa upp anda okkar og efla æðri markmið okkar og drauma. Plánetan eða stjarnan er í stjörnukerfi hundsins og var af landnámsmönnum hér kölluð Sámur, en það er gamalt hundsheiti.

HLIÐ LJÓNSINS
Þótt Síríus hafi risið með Sólinni í nokkrar vikur, hefur fólk um allan heim í fjölda ára nýtt sér orkuna sem henni fylgir í HLIÐI LJÓNSINS þann 8. ágúst. Sá dagur tengir saman hið dulræna mikilvægi þess að Síríus skuli rísa með Sólinni og þá mögnuðu talnaspekimerkingu sem áttundi dagur áttunda mánaðar ársins hefur – eða 8/8.
Talan átta er í talnaspeki talin gæfuríkasta talan og er almennt tengd ríkidæmi, velmegun og góðum árangri. Hún tengist líka krafti og styrk og þeim metnaði að vilja ná þeim markmiðum sem hver og einn setur sér. Talan 8 er líka tengd virkjun á erfðavísi okkar eða DNA-inu og æðri vitundarsviðum. Því telst 8/8 vera sérlega öflugur tími til að hreinsa eigin orkusvið og opna það upp til að taka á móti hinu nýja.
HLIÐ LJÓNSINS er talið tengjst opnun á Vetrarbrautinni, en í gegnum þá opnun streymir hátíðniorka utan úr geimnum til Jarðar. Þessar hærri tíðnir eru sagðar auka uppljómum og innsæi og örva umbreytingu og vitundarvakningu hjá heildinni, svo og hjá sérhverjum einstaklingi á Jörðinni.
SAMSPIL SÓLAR, SÍRÍUSAR OG LJÓNSINS
Þetta samspil er nokkuð stórkostlegt, því Síríus tengist samkvæmt stjörnuspekinni auðæfum, ástríðum, virðingu og jafnvel frægð. Sólin er hins vegar pláneta sjálfstrausts, viljastyrks og sjálfstjáningar. Ljónið er svo ELDmerki, sem er táknrænt fyrir hugrekki, stolt og sjálfsstjórn. Sumir stjörnuspekingar tala um að orka Ljónsins geti laðað til sín allt sem óskað er eftir.
Þegar þessar öflugu plánetur og stjörnumerki koma saman í bland við allsnægtaorkuna sem fylgir 8/8 í talnaspekinni, gerir það HLIÐ LJÓNSINS að mjög sterku tímabili til að setja fram ásetning sinn (markmið) til Alheimsins.
NÝTT TUNGL ÞANN 8. ÁGÚST
Í ár er orkan í kringum HLIÐ LJÓNSINS talin sérlega mögnuð, þar sem NÝTT TUNGL kveiknar á 16° og 14 mín. þann 8. ágúst kl. 13:49 hér á landi. Líkt og með orku Síríusar sem hefur verið að rísa nokkrar síðustu vikur, er orkan frá HLIÐI LJÓNSINS mjög öflug í 10-12 daga fyrir og eftir þann 8. ágúst.
Þetta er því góður tími til að setja sér skýran ásetning eða markmið. Best er að skrifa ásetninginn niður í fyrstu persónu eintölu eins og það sem við viljum gera að raunveruleika í lífi okkar hafi þegar gerst. Orkan sem fylgir tölunni 8 er nefnilega líka táknræn fyrir ótakmarkaða möguleika okkar.
Þetta er einnig góður tími til að örva andann og innri styrk. Til að styðja þá sem hafa áhuga á að nýta sér orkuna í kringum 8/8 hef ég útbúið hugleiðslu fyrir HLIÐ LJÓNSINS. Þú finnur hana með því að SMELLA HÉR.
Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.
Myndir: CanStockPhoto
Heimildir:
https://astrologyking.com/fixed-star-sirius/
https://www.bustle.com/life/leo-zodiac-signs-personality-traits-love-compatibility-astrology
https://www.bustle.com/life/ruling-planet-zodiac-sign-meaning-astrology
https://foreverconscious.com/the-lionsgate-88-portal
https://www.numerology.com/articles/about-numerology/single-digit-number-8-meaning/
https://foreverconscious.com/the-lionsgate-88-portal
http://www.northpointastrology.com/northpoint-journal.html
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar10. nóvember, 2026NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR
