
BLÓMKÁLS- OG SELLERÍRÓTARSÚPA
Þessa vikuna er það dásamleg súpa sem hún Ólöf í Kryddhúsinu töfrar fram fyrir okkur. Hennar ráð er að setja baunir í súpur og mauka þær, til að fá rjómakennda áferð. Þannig fær maður prótein og auka næringu í súpuna og hún verður saðsamari fyrir vikið.