HREINT HAUST
Nýtt námskeið 8. október
Einföld og áhrifarík hreinsun — fyrir meltingu, orku og innri ró
Undanfarin þrettán ár hef ég reglulega leitt hreinsikúra fyrir tæplega fimm þúsund þátttakendur. Aðferðirnar hafa þróast með árunum — en eitt hefur haldist óbreytt: hreinsun er eitt það mikilvægasta sem við getum gert til að styðja meltingarveginn og heilsu líkamans.
HREINT HAUST er nýjasta hreinsunarleiðin sem ég hef þróað: einföld, raunhæf og áhrifarík. Þú færð skýra leiðsögn skref fyrir skref. Ég hef útvegað þátttakendum 20% afslátt af þeim stuðningsefnum sem ég ráðlegg og fást hjá Mamma Veit Best.
Á námskeiðinu lærir þú meðal annars að útbúa morgundrykk sem losar um loft í þörmum. Innihaldsefnin finnur þú í venjulegri matvöruverslun. Þetta er ekki ávaxtasafi — því ávextir auka yfirleitt bara uppþembu.
Margir telja að „snýkjudýr“ séu ekki í þeirra líkama. Rannsóknir benda hins vegar til þess að flest okkar beri þau í einhverju mæli — og nútímasamfélagið hefur að miklu leyti gleymt að kenna okkur hvernig við getum brugðist við og losað okkur við þau. HREINT HAUST kennir þér einfalda og hagnýta leið til þess.
Áður en námskeiðið hefst færðu spurningalista sem hjálpar þér að meta ástand líkamans — svo þú byrjar ekki í tómarúmi, heldur með skýra mynd af því hvar þú stendur.
Hvað felst í þátttöku?
- Netnámskeið í þrjár vikur — hefst 8. október
- Fjórir Zoom-fundir með mér
- Dagleg samskipti í lokuðum Facebook-hóp
- Leiðsögn, stuðningur og hagnýt þekking og leiðir til betri heilsu sem þú getur notað áfram
VERÐ
Fullt verð: 29.700 kr.*
Skráðu þig fyrir 2. október og greiddu aðeins 23.760 kr.*
— því það er 20% afsláttur fyrir þá sem taka ákvörðun snemma.
GREIÐSLA
Hægt er að greiða með greiðslukorti eða Netgíró. Netgíró býður upp á vaxtalausa greiðsludreifingu í þrjá mánuði.
Ef þig langar í bætta og betri meltingu, meiri orku og hreinni líkama eftir sukkið í sumar — þá er HREINT HAUST fyrir þig.
Athugaðu! Sum verkalýðsfélög veita styrki til námskeiða sem falla undir lífsleikni. Leitaðu eftir upplýsingum um hvort þitt verkalýðsfélag geri það.
*Athugaðu!
Námskeiðsgjaldið fæst ekki endurgreitt, en hægt er að færa sig á næsta námskeið ef ekki er hægt að mæta á það sem viðkomandi er skráð/skráður á. Inneign fyrnist á 12 mánuðum, nema sérstaklega sé samið um annað.
Meltingarvegurinn
og heilsufar líkamans
„Bakteríur í meltingarveginum skemma slímhúð hans.“
„Bakteríur í smáþörmum valda „lekum þörmum“!“
„90% af serótóníni (gleðihormónum) líkamans er framleitt í þörmunum.“
„Bein tengsl eru á mill smáþarma og heila í gegnum Vagus taugina“.
„Bakteríur í smáþörmunum framleiða gas, sem leiðir til þess að við verðum uppþembd.“
„Gasið í þörmunum hefur skaðleg áhrif á heilsu okkar.“
„Öll upptaka á næringu úr matnum fer fram í gegnum þarmana.“
„Ef kviðurinn er útþaninn eru allar líkur á að ristillinn sé mjög bólginn.“
„Talið er að meðalmaðurinn sé með svona 3-7 kg af uppsöfnuðum úrgangi í þörmum og ristli.“
UMSAGNIR
“Ég er mjög þakklátur Guðrúnu Bergmann og HREINT námskeiðinu hennar. Eftir þessar hreinsun tek ég eftir skýrum breytingum; meiri orku, engri skykurþörf, betri líðan og er í raun allur léttari bæði á líkama og sál. Það sem stendur uppúr er hvað þetta var í raun auðvelt, en ég hefði samt aldrei gert þetta upp á eigin spýtur. Leiðsögn Guðrúnar og kennsla er lykilatriðið til að halda sig við efnið og komast á rétta leið að bættri heilsu og betri matarvenjum. Ég hef losnað við 8 kíló í þessu ferli og svona 50 kíló af sálinni. Hjartans bestu þakkir.”
– Emil Tsakalis
„Ég mæli óhikað með þessu frábæra námskeiði. Ég hef öðlast mun meiri orku, það er komin meiri ró og jafnvægi á taugakerfið og almenna líðan. Krónískar bólgur og heilabólgur hafa hjaðnað mikið á þessum vikum og ég hef farið niður um buxnastærð. Hef farið úr síþreytuástandi yfir í að geta meira en áður og bætt lífsgæðin. Hef fengið hugmyndir um einfalda tilreiðslu máltíða sem ég þoli og líður vel af. Guðrún hefur umfangsmikla þekkingu og ástríðu fyrir því að styðja fólk í átt til betri meltingarheilsu og ég er þakklát fyrir hennar stuðning og aðhald.“
– M.S.E.
Ein af mínum bestu ákvörðunum á þessu ári var að gefa mér þá gjöf að taka þátt í HREINT námskeiðinu hjá Guðrúnu Bergmann. Komið var að heilunarferli fyrir meltinguna, því ég var orðin háð því að borða og drekka sykur alla daga. Þetta var því stór ákvörðun en nú var annað hvort að duga eða drepast. Hægt var að velja um tvær leiðir Fodmap eða Carnivore sem mér fannst mjög gott og ég valdi Carnivore. Breytingin gekk mjög vel frá fyrsta degi og sykurþörfin hvarf á nokkrum dögum. Fljótlega fann ég að allar bólgur í líkamanum voru að hverfa, krónískum bólgum fann ég ekki lengur fyrir og léttist á nokkrum vikum um 9 kíló. Takk fyrir mig.
– B.B.
Þessi umsögn er í bundnu máli:
Að innan vel er orðin hrein,
að utan skín og ljóma,
öll eru horfin iðramein.
Allt er hér með sóma.
– Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
“Ég fór á vigtina í morgun og það eru 3 kg farin á þessum fyrstu 10 dögum! Ég finn mikinn mun á mér. Það er svo langt síðan að ég hef fundið svona jafnvægi allan daginn að ég svíf bara í lausu lofti. Ég stjórnast ekki lengur af sykurpúkanum og hormónum allan daginn. Ég sakna hvorki kóks né súkkulaðis. Ég bara tárast smá af gleði yfir þessu. Ég vil halda svona áfram! Ég sé loks núna von um að geta léttst og umfram allt liðið betur. Takk fyrir þetta námskeið elsku Guðrún!”
– Valdís Svanhildur
“Langar að byrja á því að þakka þér fyrir mjög gott námskeið, fræðslu og daglega hvatningarpósta. Og ekki má gleyma spurt og svarað fundunum. Get ekki mælt nógu mikið með þessu hjá þér. Það hefur opnast fyrir mér alveg nýr heimur og ég hefði ekki getað trúað árangrinum. Eins og þú hef ég prófað margt en ekkert hefur virkað jafn vel og þetta. Ég upplifði aldrei meiri þreytu, höfuðverk eða verki í upphafi heldur hafa jákvæð áhrif bara aukist dag frá degi. Orkan sjaldan verið meiri. Vakna fersk á morgnana sem ég hef ekki gert í mörg ár og einhvern veginn meira til staðar. Losunin úr nef og ennisholum hefur verið rosaleg en fer minnkandi núna. Það eru 3 kíló farin og mikill bjúgur. T.d er ég með úr á hendinni sem er með nýrri leðuról og ég er búin að þrengja hana um tvö göt.”
– Sandra Dögg
