GUÐRÚN BERGMANN stjörnuspekingur,
rithöfundur, heilsu- og lífsstílsráðgjafi

MÆÐRADAGSTILBOÐ Í ÞRJÁ DAGA!

LÆRÐU BETUR Á HVER ÞÚ ERT!

Stjörnukort er ein besta leiðin til sjálfsskoðunar og skilnings á því að við höfum öll fæðst með sérstakt “landakort” fyrir líf okkar, til að vinna úr á lífsleiðinni. Það veitir aukinn skilning á því hver við erum, af hverju við bregðumst á mismunandi hátt við hlutunum. Af hverju sumir eru heimakærir meðan aðrir vilja alltaf vera á ferðinni, af hverju við erum hrædd við náin sambönd, af hverju sjálfstæðisþörf okkar er rík eða af hverju við erum föst fyrir eins og klettar, þver og skiptum seint og illa um skoðun.

Ekkert okkar er eins, ekkert okkar er með nákvæmlega eins orku, því mismunandi plánetur bera með sér mismunandi orku og við beitum henni, vegna þess að hún er hluti af okkur. Aukin þekking á stjörnumerkjunum og þeim áhrifum sem þeim fylgir er því mikilvægur þáttur í því að skilja sjálfan sig betur og geta betur unnið með þá orku sem við “völdum” þegar við komum til Jarðar.

ÖRNÁMSKEIÐ EYKUR SKILNINGINN

Með stjörnukorti frá mér fylgir örnámskeið, þar sem ég kenni þér að lesa í kortið og skilja orku plánetanna og þau áhrif sem hún hefur haft á líf þitt og er enn að hafa, því pláneturnar halda áfram að hreyfast og hafa áhrif á okkur. Ég fjalla um allar persónulega pláneturnar í stjörnukorti þínu, svo og þau áhrif sem dvergpláneturnar (komu fyrst inn á “sjónarsvið” jarðarbúa fyrir um 20 árum) hafa haft á líf þitt og eru að hafa núna. Aukinn skilningur á orku þinni og hvernig þú getur betur beitt henni kemur til með að opna þér nýjan skilning á eigin lífi.

BAKGRUNNUR MINN Í STJÖRNUSPEKI

Ég lærði fyrst stjörnuspeki hjá Gunnlaugi Guðmundssyni á námskeiði árið 1984. Síðan þá hef ég sótt frekari námskeið og lesið ótal bækur um stjörnuspeki, auk þess sem ég hef notað stjörnuspeki til að kanna afstöður plánetanna hjá öllu því fólki, sem leitað hefur til mín í einkaráðgjöf. Jafnframt notaði ég hana við  mannaráðningar þegar ég rak Hótel Hellnar (12 ár), því ég hitti ekki fólkið fyrr en það mætti á staðinn – eftir ráðningu. Stjörnuspekin hefur því verið hluti af daglegu lífi mínu, alveg frá því ég lærði hana fyrst.

DVERGPLÁNETURNAR OG ORKAN Á BAK VIÐ ÞÆR

Undanfarin tvö og hálft ár hef ég verið í læri hjá stjörnuspekingnum Alan Clay, sem býr í Ástralíu, en hann er einn helsti sérfræðingur í Dvergplánetunum í heiminum í dag.

Þessar plánetur bera með sér tíðni sem tengist hærri meðvitund og aukninni vitundarvakningu og eru á sviði ótakmarkaðra möguleika (Quantum sviðinu). Sjá nánar í bók minni LEIÐ KÆRLEIKANS. Þær eru með tíðni sinni að veita mannkyninu stuðning í því umbreytingarferli sem liggur inn í framtíðina.

Þótt pláneturnar hafi ekki uppgötvast (sést) fyrr en fyrir rúmum 20 árum hafa stjörnuspekingar reiknað út stöðu þeirra aftur í tímann, þar sem orka þeirra hefur haft áhrif inn á líf okkar, þótt við værum ómeðvituð um það.

ÖRNÁMSKEIÐ

Með hverju stjörnukorti fylgir 45-50 mínútna örnámskeið ef þú velur SILFURPAKKANN og 75 mínútna örnámskeið ef þú velur GULLPAKKANN. Það fer fram í gegnum ZOOM þar sem ég kenni fólki að lesa úr kortinu og fjalla um áhrif plánetanna í hverju húsi fyrir sig. Námskeiðsfundinn er auðvelt að taka upp á síma.

Mundu, þegar þú pantar þér kort, að skrá fæðingardag, -ár, -tíma og -stað í athugasemdadálkinn á greiðslusíðunni.

STJÖRNUKORTIÐ er hægt að greiða með debet eða kreditkorti. Þeir sem eru með NETGÍRÓ geta dreift greiðslum vaxtalaust í 2-3 mánuði!

  • SILFURPAKKINN með 50 mínútna örnámskeiði
    kostar  17.770 kr.*
    Mæðradagstilboð – 14.440 kr.*
  • GULLPAKKINN með 75 mínútna örnámskeiði og
    ítarlegri skýringum kostar 22.220 kr.*
    Mæðradagstilboð – 17.770 kr.*

NOKKRAR
UMSAGNIR

“Takk kærlega Guðrún fyrir skemmtilegan, fróðlegan og greinargóðan lestur úr stjörnukortinu mínu. Eftir hann átta ég mig svo vel á því hvað pláneturnar eru að hafa mikil áhrif á allt í lífinu. Ég mæli heilshugar með því fyrir alla að fá sér stjörnukort og lestur.”
– Fjóla I. Kjartansdóttir – Jógakennari

“Það var frábært að fá stjörnukort hjá þér kæra Guðrún. Örnámskeiðið var magnað og þú náðir að lýsa fullkomlega því sem er að gerast í mínu lífi núna. Ég mæli eindregið með því að fólk fái sér stjörnukort frá þér.

Fyrir mína parta hlakka ég mikið til að sjá hvernig mér tekst að vinna úr upplýsingunum og nýta mér öll góðu ráðin sem þú gast mér og tækifærin sem þú bentir mér á. Hjartans þakkir fyrir einstaka stund og vonandi nýta sem flestir þjónustu þína.”

– Birgitta Hrönn Halldórsdóttir, rithöfundur og Reiki meistari

„Ég ákvað að gefa sjálfri mér í afmælisgjöf stjörnukort hjá Guðrúnu. Hef alla tíð haft áhuga á stjörnunum og og plánetunum okkar og ákvað því að heyra í henni og taka stöðuna fyrir árið.  Þessi lestur og kennsla var alveg hreint mögnu., Guðrún er gífurlega fróð um áhrif plánetanna á okkur sjálf.  Hún gaf mér góða mynd af sjálfri mér og síðan fór hún yfir árið framundan, hvað sé í vændum, hvaða verkefni ég þyrfti að skoða og vinna í á árinu. Virkilega gott og gaman að finna hvað hún er nákvæm og gat lýst þessu fyrir mér í smáatriðum enda gífurlega fróð og mikill viskubrunnur. Mæli eindregið með að fólk fái sér stjörnukort, því það eru magnaðir tímar framundan sem er gaman að skyggnast inn í undir handleiðslu og leiðarljósi Guðrúnar.“
– Hjördís Ósk – Dáleiðari og Reikimeistari

Ég mæli með henni Guðrúnu Bergmann. Ég skildi sjálfan mig betur og vissi hvað ég gat gert til að leysa það sem þurfti að leysa. Ég sé ekki eftir að hafa látið gera stjörnukort fyrir mig. Það svarar svo mörgu og opnar svo margt skemmtilegt.
– Jóhanna í Spákofanum
“Ég er svo ánægð með stjörnukortið mitt og örnámskeiðið sem fylgdi í kaupunum. Það gaf mér betri sýn á sjálfa mig og líf mitt. Gaman að kynnast líka dvergplánetunum og sjá hvað þær hafa mikil áhrif á okkur. Mæli mjög mikið með stjörnukortunum frá henni.”
– Guðrún S. Svanbergsdóttir – Reikimeistari og Englareiki heilari

“Ég var mjög ánægð með örnámskeiðið. Skýringarnar voru vel fram settar og á skemmtilegan hátt. Guðrún hefur líka næmleika sem hefur mikið vægi í skýringunum að mér finnst. Hún er líka með skemmtilega og góða nærveru. Mæli hiklaust með stjörnukortum frá henni. Fór mjög sátt, glöð og uppfull af góðum ábendingum frá viðtalinu.”

– Sigrún Inga Birgisdóttir, heilari og hómópati

*ATH! Ekki er hægt að fá stjörnukortin og örnámskeiðið endurgreitt.

image_print
Deila áfram