NÝTT TUNGL Í TVÍBURA

NÝTT TUNGL Í TVÍBURA

Hér er smá samantekt um orkuna í kringum nýtt Tungl í Tvíbura sem kveiknar aðfaranótt 18. júní – svona um það leiti sem Þjóðhátíðarhöldin hjá þeim sem lengst halda út eru að enda. Tunglið kveiknar á tuttugu og sex gráðum í Tvíbura. Tvíburinn tengist samfélagsmiðlum, tjáskiptum og ýmsum óvæntum upplýsingum sem líklegar eru til að koma upp á yfirborðið.

Merkúr er líka í Tvíbura og á hraðferð í gegnum það merki. Úranus er æðri birtingin af Merkúr, en hann er líka á mikilli hraðferð, miðað við hversu hægt hann fer annars yfir. Hann er í Nautsmerkinu og verður þar meira og minna fram til ársins 2026. Orku hans fylgja alltaf óvæntir atburður, eldgos og jarðhræringar, hvort sem er manna á meðal eða í Jörðinni sjálfri.

SATÚRNUS OG PLÚTÓ

Satúrnus sem er í Fiskum er á ferð aftur á bak um sporbaug sinn. Með honum erum við að endurmeta ýmislegt sem gerst hefur undanfarin þrjú til fjögur ár og sjá hlutina nýjum augum, svona eins og við höfum ekki séð þá áður. Þar á meðal ýmislegt sem við töldum staðreyndir og upplýsingar sem við treystum á.

Plútó fer á næstunni aftur inn í Steingeitina. Það gæti þýtt að stjórnvöld myndu reyna að setja einhverjar frekari kvaðir á mál- og tjáningarfrelsi í framhaldi af því. Mikið er reyndar vegið að því nú þegar. Meðal annars er reynt að banna listamönnum eins og Roger Waters að flytja sýningar sem hann hefur flutt um allan heim í fjölda ára við lög sín og koma í veg fyrir að hann geti haldið tónleika í Þýskalandi og Bretlandi.

SUMARSÓLSTÖÐURNAR

Plútó verður svo í hundrað sextíu og fimm gráðu afstöðu við Mars þegar kemur að Sumarsólstöðum þann 21. júní, en þeirri afstöðu getur fylgt valdabarátta, umrót eða jafnvel byltingar, sem líklegt er að gætu orðið á milli einstaklinga og ríkisstjórna. Víða um heim eru mótmæli og óeirðir, vegna þess að fólk er ósátt við stjórnvöld.

Plútó er enn í spennuafstöðu við Öxulnóðuna og verður það næsta eina og hálfa árið. Í júlí skipta Nóðurnar um merki og þá mun öxull Norður- og Suðurnóðunnar liggja milli Hrúts og Vogar. Orkan mun breytast töluvert þegar þetta gerist, því núna eru Nóðurnar í Nauti og Sporðdreka.

Val okkar, þegar Norðurnóðan fer inn í Hrút og Suðurnóðan inn í Vog, kemur því til með að vera mjög mikilvægt og því skiptir máli að velja vel hvaða leið við förum, meðal annars í tengslum við allt rafrænt sem snýr að gervigreind. Líka að velta fyrir okkur hvað það þýðir að vera mennskur, þar sem gervigreindin er líka að ryðja sér inn í líkama fólks.

UMSKIPTI HJÁ PLÁNETUNUM

Þann 25. júní megum við búast við spennuþrungnum degi, því þá verður spennuafstaða á milli Mars og Úranusar. Mars er í Ljónsmerkinu (eldur) og Úranus í Nautsmerkinu (Jörð) og orkan sem fylgir þessum plánetum gæti valdið öllum tegundum af jarðskjálftum, hvort sem er í Jörðinni, í ríkisstjórnum eða meðal mannfólksins.

Þann 27. júní verður Tunglið, sem táknrænt er fyrir tilfinningar og undirvitund einstaklinga og fólkið sem heild þegar um þjóðir er að ræða – í níutíu gráðu spennuafstöðu við Plútó. Orkan sem því fylgir gæti tengst uppljóstrunum á vel geymdum leyndarmálum og alls konar tilfinningum um svik stjórnvalda.

Tveim dögum síðar eða þann 29. júní er Tunglið svo komið í hundrað og áttatíu gráðu spennuafstöðu við Úranus, sem með sinni sprengikenndu orku gæti birst á svipaðan hátt og Tungl-Plútó spennuafstaðan.

Þann 30. júní stöðvast Neptúnus svo til að breyta um stefnu og fara aftur á bak. Neptúnus er í Fiskum og orka hans þar gæti því tengst flóðum eða öðrum málefnum tengdum vatni. Neptúnus er líka mjög tengdur draumum okkar og því mikilvægt að fylgjast með þeim og jafnvel biðja um að fá leiðbeiningar í gegnum þá.

Til að halda utan um leiðbeiningarnar er mikilvægt að skrá alla drauma niður í draumadagbók strax og vaknað er, því annars er hætta á að þeir týnist, því þeir rjúka oft svo hratt úr huga okkar.

ORKULÍNUR Á SUMARSÓLSTÖÐUM

Gert er ráð fyrir miklu innstreymi af kosmískri orku til Jarðar í kringum Sumarsólstöðurnar, en þær marka þau tímamót þegar Sólin fer inn í Krabbamerkið. Sú orka hækkar tíðnina bæði í líkama okkar og Jörðinni. Jafnframt eykur orkan ljósmagn þeirra. Samhliða þessari orkuuppfærslu eru líkamar okkar að verða kristaliseraðri. Orkan tengd Sólstöðunum teygir sig til beggja átta við þær og því finnum við nú þegar mikið fyrir henni.

Til að milda áhrif þessarar orku og hjálpa okkur að aðlagast henni er gott að ganga með ametyst kristal í vasanum, hafa á sér skartgripi úr ametyst eða hafa stóran ametyst inni hjá sér. Einnig er upplagt að finna sér góðan stað í nágrenni við orkulínur eða einhvern stað sem er orkuríkur uppáhaldsstaður og hugleiða þar á Sólstöðum og taka meðvitað á móti orkunni sem þeim fylgir.

Samkvæmt breska jarð- og líf-jarðfræðingnum Rory Duff, sem hefur sérhæft sig í að mæla orkulínur Jarðar, má vænta þess að allar „Emperor Dragon“ orkulínur Jarðar opnist við þessar Sólstöður. Samhliða því má vænta mikillar hækkunar á tíðni um alla Jörð. Rory telur jafnframt að eftir Sólstöðurnar megum við vænta þess að allar orkulínur Jarðar hafi breikkað um tuttugu prósent.

INNRI RÓ

Hvað sem á gengur í öllu þessu umróti og umbreytingum er mikilvægt að halda innri ró og vera meðvitaður um að við stjórnum öllu í lífi okkar frá okkar innri kjarna. Ef við hlustum á hjartað, stundum reglulega Hjartaöndun, hugleiðum – sjá greinina EINFALDAR HUGLEIÐSLUR SKILA ÁRANGRI – og vinnum út frá okkar innri styrk getum við haldið innri ró. Þannig getum við verið við stjórnvölinn og ákvarðað veruleika okkar hverju sinni.

Einnig er frábært að nota daglega möntruna:

ÉG ER LJÓSIÐ,

ÉG ER KÆRLEIKURINN,

ÉG ER SANNLEIKURINN,

ÉG ER!

til að styrkja sjálfan sig, hækka tíðni Jarðar og okkar sjálfra og tengja okkur við Guðsvitundina.

Hægt er að lesa meira um þá umbreytingu sem er að verða í heiminum í bók minni LEIÐ HJARTANS – en henni fylgir FRÍ heimsending.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð deildu henni þá endilega með öðrum.

Þér er velkomið að skrá þig á PÓSTLISTANN minn til að fá reglulega sendar greinar um sjálfsrækt, andleg málefni, stjörnuspeki og náttúrulegar leiðir til að styrkja heilsuna.

Myndir: CanStockPhoto.com 

Heimildir: Útdráttur úr skýringur Pam Gregory, birt með leyfi höfundar. Sjá skýringar í heild sinni HÉR!