NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
NÝJA SPORÐDREKATUNGLIÐ
- OG SPENNUAFSTAÐAN VIÐ MARS Í LJÓNI
Ég veit að þessi grein er aðeins eftirá, vegna þess að nýja Tunglið í Sporðdreka kviknaði þann 9. nóvember síðastliðinn á 16 gráðum í Sporðdreka. Þetta er hins vegar svo góð skýring á því hvaða áhrif það er að hafa á okkur að mér finnst nauðsynlegt að deila henni. Áhrifanna gætir nefnilega áfram – í allt að sex mánuði og þótt vera kunni að Sólin þín sé ekki í Sporðdreka – þá er Sporðdrekinn einhvers staðar í kortinu þínu og hefur áhrif. Spurningin er bara hvaða áhrif?
Nýja Tunglið var í níutíu gráðu spennuafstöðu við sinn eigin stjórnanda, Mars, sem nú er í Ljóninu. Að vissu leyti vinnur það því gegn sjálfu sér. En þetta er ekki nýtt Tungl sem grefur undan okkur, takmarkar okkur eða hvetur til uppgjafar. Þvert á móti.
Það er skemmtileg mótsögn fólgin í þessu nýja Tungli. Já, það er í spennuafstöðu við Mars, hefðbundinn stjórnanda sinn. En Sólin er líka í gagnkvæmri móttöku við Mars. Sólin er í merki sem Mars stjórnar og Mars er í merki sem Sólin stjórnar.
Þetta bendir til þess að lausnin felist í vandanum sjálfum. Einmitt það sem við erum að glíma við geymir lykilinn að því að komast áfram.
MARS, JÚPITER OG SUÐURNÓÐAN
Mars nálgast samstöðu við Júpíter og Suðurnóðuna (fortíð okkar). Gríðarleg spenna hefur safnast upp og henni verður ekki lengur haldið í skefjum. Okkur getur fundist við vera að þolmörkum komin.
Við þráum eitthvað – svo innilega – en getum samt ekki sleppt tökunum á því gamla, hvort sem það er hugsanaháttur, vani eða eitthvað annað. Við virðumst ekki komast í gegnum mótstöðuna sem hefur einmitt skapað það þrátefli sem við erum að reyna að rjúfa og það er MIKIÐ á seyði í himinhvolfinu.
Merkúr er á ferð aftur á bak í Sporðdrekanum. Venus er enn á ferð aftur á bak og þótt hún sé nú í Voginni, hófst ferð hennar aftur á bak í Sporðdrekanum. Undanfarna tvo mánuði höfum við því þurft að takast á við margt sem tengist orku Sporðdrekans – og hjá honum er það gjarnan allt eða ekkert.
Þegar orkan er góð er hún virkilega góð. Hún einkennist af nánd, ákafa, einbeitni og lífskrafti.
En þegar hún er erfið getur hún verið hreinasta kvöl. Af öllum merkjum stjörnuhringsins er Sporðdrekinn það merki sem lætur einfaldlega ekki blekkjast af hálfsannleika eða tilraunum til að komast hjá því að horfast í augu við tilfinningar. Hann sættir sig ekki við neitt sem ristir ekki nógu djúpt til að komast að því sem raunverulega er á seyði.
Þótt við teljum okkur ekki eiga nein óuppgerð mál – eru allar líkur á að það sé enn eitthvað sem heldur okkur föstum.
EKKI LITIÐ UNDAN LENGUR
Þegar pláneturnar í Sporðdrekanum raðast loks saman – eins og þær gera núna – er ekki lengur hægt að hunsa allt það sem við höfum falið, bælt niður og kosið að horfa ekki á. Öll leyndarmálin, skömmina, óunnu tilfinningarnar og óþægilegu sannindin. Það er einfaldlega EKKI LENGUR HÆGT að líta undan.
Lykillinn að því að vinna með orkunni frá þessu nýja Tungli er að viðurkenna að hlutirnir séu kannski ekki eins og við segjum okkur sjálfum að þeir séu. Ef við viljum í alvöru skilja hvað er á seyði verðum við að draga okkar eigin útgáfu af sögunni í efa.
Það er til kunnugleg mynd sem gengur um á netinu: Einhver er í þann mund að afhjúpa þann sem ber ábyrgð á öllum hans vandamálum – sjálft aðal illmennið. En þegar gríman er rifin af blasir við hans eigið andlit. Hann er sjálfur óvinurinn.
SÁRSAUKINN HEILAR
Nýja Tunglið í Sporðdreka biður okkur að sjá hvar við erum okkar eigin verstu óvinir, því það höfum við verið allan tímann. Auðvitað hafa sumir gert okkur rangt til, sama hvaða mælikvarði er lagður á það. Áföll og óréttlæti eru raunveruleg.
Þótt við séum stundum afar glögg á það sem að er í heiminum eða hvernig aðrir hafa beitt okkur órétti, sjáum við ekki jafn skýrt okkar þátt í slíku samspili? Hvað gerðum við – og ekki síður, hvað létum við ógert – sem leiddi okkur þangað sem við erum núna?
Nýja Tunglið í Sporðdreka snýst ekki um að refsa sjálfum okkur, þótt Sporðdrekinn stingi stundum. Það snýst um að vera fullkomlega heiðarleg við okkur sjálf um þann hluta sem við höfum raunverulega stjórn á: okkar eigin þátttöku.
Þegar við sjáum hvernig okkar eigin gjörðir hafa átt þátt í að koma okkur þangað sem við erum og leyfum sársaukanum við þá viðurkenningu að verða okkur til heilunar, þá fyrst getum við brugðist öðruvísi við.
MARS Í LJÓNI
Þegar við sjáum okkar eigin þátt sjáum við líka hvar við getum gripið til aðgerða. Þær snúast ekki alltaf um það sem við gerum, heldur líka það sem við gerum ekki.

Að aðhafast ekkert og taka ekki persónulega ábyrgð þegar aðstæðurnar kalla á það – eins og Mars í Ljóni minnir okkur á – getur ábyrgðarleysið verið það sem helst stendur okkur sjálfum fyrir þrifum.
Þegar við sjáum loksins tengslin milli þess sem við höfum gert eða látið ógert og þess sem sífellt endurtekur sig í lífi okkar, getur orkan sem áður fór í gremju umbreyst í kraft til að gera breytingar og halda áfram.
Venus er í sextíu gráðu samhljóma afstöðu við Mars, stjórnanda nýja Tunglsins. Fegurð, mildi og kærleikur eru innan seilingar.
Allur sársaukinn sem fylgt hefur ferðum plánetanna aftur á bak í tengslum við Sporðdrekann hefur ekki verið til einskis. Það er farið að rofa til og eitthvað gott bíður rétt handan við hornið. En við verðum sjálf að taka á móti því.
Það gæti þýtt að við þurfum að taka inn okkar eigin meðal – að sjá hvernig við höfum staðið í vegi fyrir okkur sjálfum án þess að átta okkur á því.
Nýja Tunglið í Sporðdreka býður okkur að sjá hvernig við höfum spillt fyrir því sem við segjumst vilja með því að halda okkur í skugganum, gefa í skyn í stað þess að segja hlutina berum orðum, halda bókhald yfir misgjörðir í stað þess að grípa til aðgerða eða þegja um sannleikann af því að „hinn aðilinn ætti að vita þetta“.
Þarna mætast spennuafstaðan við Mars og gagnkvæma móttakan. Sá hluti okkar sem hefur staðið okkur fyrir þrifum er líka sá hluti sem getur gert eitthvað í málinu. Mars ásamt Júpíter og Suðurnóðunni í Ljóninu hvetur okkur til að sýna heiðarleika og hugrekki og taka ábyrgð.
Og spennuafstaðan við Mars bætir við: Viðurkenndu þinn þátt í sögunni – og þar með mátt þinn til að breyta því sem gerist næst.
Heimild: Þýtt og endursagt úr grein frá Astro Butterfly.
Myndir: Shutterstock.com; CanStockPhoto.com;
EF ÞÚ ÁTT EKKI STJÖRNUKORT – þá eru kortin mín með 20% afslætti þennan mánuðinn. SMELLTU HÉR til að panta þér kort! Afsláttarkóðinn er “Dreki”.
Fleiri greinar um Venus og Sporðdrekann: