VEFJUR MEÐ REYKTUM LAXI OG KALDRI SÓSU
Það er orðið frekar langt síðan við höfum fengið uppskrift
frá Matarbloggara síðunnar, henni Björgu Helen.
Hér deilir hún með okkur einfaldri uppskrift að
vefjum með reyktum laxi og kaldri sósu
með súrum gúrkum. Hljómar eins og
léttur helgarréttur í hádeginu eða
á kvöldin.
Kæri lesandi,
Mér finnast vefjur vera snilldar matur. Hægt er að setja kjöt, fisk eða grænmeti inn í þær og búa þannig til dýrindis máltíð.
Reyktur lax með sósu með súrum gúrkum er góð samsetning. Einföld uppskrift sem er fljótlegt
að gera. Endilega prufið.
Með dásamlegri matarkveðju
Björg Helen
VEFJUR MEÐ REYKTUM LAXI
OG KALDRI SÓSU MEÐ SÚRUM GÚRKUM
vefjur
reyktur lax
vorlaukur
ferskt salat
2 kúfaðar msk af mayonesi Hellmans
2 kúfaðar msk af létt grískri jógúrt MS
100 gr smátt saxaðar súrar gúrkur
1 msk safi af súru gúrkunum
salt og svartur pipar eftir smekk
Blandið öllum hráefnunum saman í skál og
hrærið vel saman.
Saltið og piprið eftir smekk.

