TILFINNINGAR GEYMAST Í LÍKAMANUM

Tilfinningar þínar eru ekki bara í höfðinu á þér. Þær eru geymdar í líkama þínum í líkamsminninu. Við höfum lært að bæla tilfinningar okkar niður, því flestum okkar er kennt að hugsa um tilfinningar sem andlega reynslu. Eitthvað sem er hverfult. Eitthvað sem er ósýnilegt og aðskilið frá líkamanum.

VÍSINDIN SEGJA AÐRA SÖGU

Bæði vísindin – og lífsreynslan – segja þó aðra sögu. Sérhver tilfinning, hvort sem hún er tjáð eða bæld, skapar foss af lífeðlisfræðilegum viðbrögðum. Þessar tilfinningabylgjur í líkamanum hverfa ekki af sjálfu sér, heldur þarf að vinna úr þeim. Þær setjast að í líkamanum, geymdar í vöðvaspennu, taugamynstri, ýmsum blokkeringum á flæði í líkamanum og í líffærakerfunum.

LÍKAMINN MAN ALLT

Líkaminn man það sem hugurinn reynir að gleyma. Sé okkur þungt fyrir brjósti, eða við erum með langvarandi bakverk eða kökk í hálsi – getur verið um meira en bara „líkamlegt“ vandamál sé að ræða. Þessi líkamlegu einkenni geta verið sálræn og tengd tilfinningalegri innrætingu.

Verkurinn í öxlunum getur verið tengdur því að þú ætlar að bera byrðar allra í kringum þig eða því að eitthvað hvílir þungt á þér, líkt og þú ein/einn berir ábyrgð á öllu því sem misfarist hefur í kringum þig eða það sé þitt hlutverk að leysa málið, sem er kannski alls ekki þitt að gera.

Oft eru þessir verkir tengdir því að málin eru ekki rædd eða viðkomandi tjáir sig ekki um sína afstöðu í málum.

ÞRÁLÁTIR MAGAVERKIR

Kannski eru þessir þrálátu magaverkir og óþægindi tend kvíða. Málum sem hafa verið óunnin í mörg ár. Þannig verður tilfinningaleg vanlíðan að líkamlegum einkennum.

Þetta er raunverulegt fyrirbæri, en samt sem áður er lítið að því hugað í hefðbundnum umönnunaraðferðum eða vestrænni læknisfræði.

FRÁ TAUGAKERFI TIL HORMÓNA    

Nútímarannsóknir á gagnkvæmni sýna að tilfinningalegt ástand hefur bein áhrif á
starfsemi ósjálfráða taugakerfisins, heilsu þarma, hormónajafnvægi og jafnvel ónæmiskerfi líkamans. Þegar líkaminn er öruggur, jarðtengdur og nýtur tilfinningalegs stuðnings, kemst á jafnvægi og hann heilast hraðar.

Þegar þau eru hunsuð eru þessi sömu kerfi óregluleg. Þau festast í baráttu, flótta eða stöðnun hjá viðkomandi.  Þannig virka vísindi tilfinninganna.

Sönn lækning er lagskipt, ekki línuleg. Það skýrir fyrir okkur af hverju tilfinningaleg losun er oft tengd einhverri hreyfingu eða umbreytingu í líkamanum.

Af hverju sumir fara að gráta á meðan á nuddi stendur. Af hverju reiði brýst fram hjá sumum við öndunarfæingar. Af hverju sorg kemur fram við afeitrun (detox). Þetta eru ekki merki um að eitthvað sé að. Þvert á móti eru þetta merki um að taugakerfið sé að losa geymdar sögur sem setið hafa fastar hér og þar í líkamsminninu.

FRAMTÍÐ LÆKNINGA VERÐUR SAMÞÆTT

Þeir sem stunda heildrænar lækingar eða heilun vinna ekki bara með líkamann. Þeir vinna líka með sálina sem í honum býr. Heilun verður að vera heildræn: líkamleg, andleg, tilfinningarík og kraftmikil.

Sérhver einkenni eru merki um eitthvað falið. Sérhver tilfinningabylgja er gluggi inn í eitthvað óleyst … eða eitthvað sem við erum tilbúin til að endurheimta. Því er mikilvægt að forðast ekki skilaboðin sem líkaminn sendir frá sér.

Finndu fyrir þeim að fullu. Láttu þau líða í gegnum þig. Líkami þinn er ekki að svíkja þig. Hann er að reyna að losa þig undan þessu tilfinningalega oki.

Heimild: Þýdd og örlítið endursögð grein eftir Carey Ann George, sem er Transformational Life and Wellness Coach

Mynd: 

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur

Meira en hreint

Lifrarhreinsun

Stjörnukort

Einkaráðgjöf

Skráðu þig á PÓSTLISTANN