ÞRENNT SEM BREYTIR LÍFINU
Eins og svo margir aðrir heillaðist ég af kenningum Louise L. Hay, þegar bókin hennar Heal Your Life (íslenska heitið varð Hjálpaðu sjálfum þér) kom út í kringum 1988.
Hún varð að nokkurs konar handbók hjá mér sem ég nýti mér reglulega enn þann dag í dag. Ég hef gjarnan vísað til hennar sem einföldustu og bestu sjálfshjálparbókar allra tíma. Louise var nefnilega ekki að flækja hlutina.
ÞETTA ER BARA HUGSUN…
Þessi tilvitnun í orð Louise „ÞETTA ER BARA HUGSUN OG HUGSUN ER HÆGT AÐ BREYTA“ er kannski einhver sú allra áhrifamesta sem frá henni kom.
Þegar við gerum okkur grein fyrir að við ráðum yfir hugsunum okkar og að þeim er hægt að breyta, breytist svo margt í lífi okkar. Þessi einfaldi sannleikur er svo öflugur vegna þess að þegar við skiljum kjarnann í honum, vitum við að við getum alltaf gert líf okkar betra, bara með því að breyta því hvernig við hugsum.
Svo mörg af þeim vandamálum sem við höldum að við séum að takst á við eru í raun sköpuð af okkar eigin hugsunum. Á hverjum degi þjóta um það bil 10.000 hugsanir í gegnum huga okkar. Margar þeirra eru neikvæðar, bæði þær sem snúa að okkur sjálfum og aðstæðum okkar – en eru í raun og veru alls ekki sannar.
EF ÞÚ BREYTIR ÞVÍ….
Einn af vinum Louise var rithöfundurinn Wayne Dyer. Hans ráð var svipað og tilvitnunin í orð Louise hér að ofan. Hann sagði gjarnan: „EF ÞÚ BREYTIR ÞVÍ HVERNIG ÞÚ LÍTUR Á HLUTINA, ÞÁ BREYTAST HLUTIRNIR SEM ÞÚ HORFIR Á.“
Ég get staðfest að þessi tilvitnun í orð hans breytti því hvernig ég horfði á hárið mitt. Mig dreymdi á yngri árum um að vera með rennislétt fíngert hár og fann því alltaf eitthvað að mínu grófa, þykka og sjálfliðaða hári og gerði allt sem ég gat til að slétta það.
Þegar ég hins vegar ákvað að horfa á það sem flott og fallegt þótt það væri krullað, breyttist allt. Ég sætti mig loks við það eins og það var og þá fór það að verða fallegt í huga mínum.
Í fyrsta skipti sem ég bað hárgreiðslukonuna mína um að leyfa krullunum að njóta sín eftir klippingu, spurði Gulli heitinn einmitt þegar hann kom heim úr vinnunni: „Erum við að fara eitthvað út? Hárið á þér er svo fínt.“ Það var því ekki bara ég sem sá hárið í nýju ljósi þegar það fékk að njóta sín eins og það var.
GERÐU ÞAÐ SEM ÞÚ ELSKAR…
Ég hef alltaf undrað mig á viðhorfi fólks sem nær því sem kallast eftirlaunaaldur og hættir að vinna og segist „ætla loks að fara að lifa lífinu“.
Hvað hefur það þá verið að gera fram að þeim tíma? Við erum alltaf að lifa lífinu, sama á hvaða aldri við erum og getum svo sannarlega gert það eins skemmtilegt og okkur langar til með vali okkar og viðhorfi.
Ég hef löngu tileinkað mér það og ákveðið að ég ætli aldrei að hætta að vinna. Ég ætla bara að halda áfram að GERA ÞAÐ SEM ÉG ELSKA OG KALLA ÞAÐ VINNU.
Það er margir sem hafa tileinkað sér þessi orð, en það má líka vísa í texta í kántrílaginu „Buy Dirt“ eftir Jordan Davis, en þar koma þessi orð einmitt fram: „Gerðu það sem þú elskar en kallaðu það vinnu.“
ÆFÐU ÞIG…
Viðhorf okkar til allra hluta ráðast af því hvernig við hugsum um þá eða sjáum þá fyrir okkur. Því er mikilvægt að breyta hugsunum okkar ef við erum að hugsa neikvætt um hlutina, að breyta því hvernig við lítum á eitthvað sem við köllum ljótt og að elska alla daga það sem við gerum – hvað sem það er. Þá verður lífið svo miklu léttara og skemmtilegra.
Ef þér fannst þessi grein áhugaverð
deildu henni þá endilega með öðrum
Mynd: Shutterstock.com
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar20. janúar, 2026MIKIL UMBROT 20.-26. JANÚAR 2026
Greinar16. janúar, 2026FYRSTA NÝJA TUNGL ÁRSINS
Greinar11. janúar, 2026SÍÐUSTU VIKURNAR Í ÁRI SNÁKSINS
Greinar2. janúar, 20262026 ER ÁR ELDHESTSINS

