STRÁKAR! Þessi grein er fyrir ykkur!

STRÁKAR! Þessi grein er fyrir ykkur!

Fyrir réttum þrjátíu árum fór ég að halda ýmis konar heilsu- og sjálfsræktarnámskeið. Þátttakendur voru aðallega konur, þótt einn og einn karlmaður slæddist með.

Undanfarin fimm ár hef ég haldið stuðningsnámskeið við HREINT MATARÆÐI hreinsikúrinn. Samsetning þátttakenda er enn sú saman. Meirihluti þátttakenda eru konur, en einn og einn karlmaður slæðist með, þótt 1750 einstaklingar hafi sótt námskeiðin á þessum árum.

KARLMENN ÞURFA LÍKA AÐ GÆTA HEILSUNNAR

Það er eins og karlmenn fatti ekki að þeir þurfi líka að hugsa um eigin heilsu og að forvarnir séu besta leiðin til að njóta góðra lífsgæða sem lengst.

Sigurður Helgi er 53 ára og hefur komið tvisvar á HREINT MATARÆÐI námskeið Hann hefur náð ótrúlega góðum heilsufarslegum árangri í bæði skiptin:

“Ég var að ljúka við mitt annað HREINT námskeið. Hið fyrra var fyrir ári síðan og þá náði ég mjög góðum árangri sem ég hef viðhaldið að miklu leiti. Eftir það námskeið hélt ég inni ákveðnum breytingum á lífsstíl, en svo fer mataræðið stundum úr böndum í sumarfríjum og svoleiðis.

Undanfarna mánuði þurfti ég að taka inn auka steratöflur daglega vegna liðverkja, en eftir að ég byrjaði í hreinsuninni hef ég ekki þurft þess. Bólgur og bjúgur hafa runnið af mér. Fyrir hreinsun voru hægðirnar ekki í lagi. Ég var með stöðugan niðurgang, en núna er hægðalosun eins og best verður á kosið. Mikið slím hefur losnað uppúr mér, sem er frábært, því ég er með alvarlegan lungnasjúkdóm.

Fyrir hreinsun þurfti ég stundum að fara þrisvar sinnum á nóttu framúr til að pissa, en núna bara einu sinni og þar af leiðandi sef ég miklu betur. Blóðþrýstingur hefur lækkað verulega og hef ég minnkað lyfjaskammtinn úr 20 mg í 5 mg og er með fínan blóðþrýsting núna.

Ég hef verið með kæfisvefn en mér skilst á konunni að ég hrjóti minna og kannski þarf ég ekki lengur tækið á nóttunni. Ég er orkumeiri og ekki eins mæðinn og hef meira úthald.

Ég léttist um 8 kg á þessum 24 dögum. Fundirnir eru mjög góðir og nauðsynlegir og öll eftirfylgni og hvatningin frá Guðrúnu Bergmann frábær. Ég mæli eindregið með þessu námskeiði.“

KARLMENN LÉTTAST MEST

Þótt HREINT MATARÆÐI sé hreinsikúr, en ekki megrunarkúr, léttast flestir um einhver kíló, en þó karlmenn alltaf mest. Þeir hafa verið að léttast þetta frá sjö og upp í þrettán kíló á meðan á hreinsun stendur. Síðastliðið vor var einn húsasmíðameistari sérlega ánægður með sinn árangur „… því hann passaði aftur í mótorhjólagallann…“.

Annar karlmaður var mjög ánægður með að kólesterólið lækkaði í eðlileg gildi og blóðsykur, sem kominn var í hættumörk fór niður í eðlileg gildi.

EKKI GERA EKKI NEITT

Þið þurfið að taka ábyrgð á heilsu ykkar strákar. Hvaða leið sem þið veljið að fara til þess, hvet ég ykkur til að byrja strax að spá í hana.

Ef HREINT MATARÆÐI námskeið verður fyrir valinu, þá hefst næsta námskeið 18. febrúar. SMELLTU HÉR ef þú vilt lesa meira og skrá þig. NETnám er líka í boði.

Hafið í huga að heilsa ykkar eftir fimm, tíu eða fimmtán ár ræðst af því sem þið gerið í dag.

Guðrún Bergmann, rithöfundur og heilsu- og lífsstílsráðgjafi

Mynd: CanStockPhoto – tashka