NÚ EÐA ALDREI
NÚ EÐA ALDREI
Nýtt Tungl í Tvíburum 24. nóvember 2026
Þetta nýja OFURtungl sem varð fullt í Reykjavík kl. 14:53, á 2 gráðum og 20 mínúum í Tvíburum, er Í nákvæmri samstöðu við Úranus og er hlaðið orku sem öskrar „nú eða aldrei“.
Auk þess er það í níutíu gráðu spennuafstöðu við Mars, Júpíter og Tunglnóðurnar sem gerir það að verkum að við finnum að eitthvað verður að láta undan. Við getum hvorki lengur haldið áfram á sömu braut, né haldið í þá útgáfu af lífi okkar sem við erum vaxin upp úr.
Og þótt orkan sé nokkuð spennuþrungin, er stuðningur líka til staðar. Fulla Tunglið er í 120 gráðu samhljóma afstöðu við Plútó og í sextíu gráðu samhljóma afstöðu við Neptúnus.
Við skynjum stefnuna, öðlumst glimt af heildarmyndinni og fáum tilfinningu fyrir æðra hlutverki – nánast eins og Alheimurinn sé að fullvissa okkur um að hversu erfið sem umskiptin verða, þá er það sem bíður okkar hinum megin þess virði.
RÁÐANDI ORKAN ER ÚRANUS
Ráðandi orkan er auðvitað Úranus. Þetta er fyrsti Tunglviðburðurinn sem myndar nána samstöðu við Úranus í Tvíburum frá því hann fór inn í merkið – og þetta er nánast hárnákvæm samstaða!
Þessi orka Úranusar í Tvíburum er ekki aðeins ný fyrir okkur – heldur kemur hún inn í gegnum fullt Tungl , svo við fáum hana hlaðna fullri spennu.
Þegar við upplifum eitthvað sem við höfum ekki upplifað áður, vitum við ekki alveg hvernig við eigum að bregðast við. Taugakerfi okkar hefur enn ekki lært hverju við má búast. Slíkt á við um alla óþekkta reynslu – en með Úranusi getur þessi upplifun virkað eins og raflost.
Þar sem þessi orka kemur inn í gegnum Tvíburanna getum við upplifað skyndilega byltingu, innsýn eða fréttir sem „snúa öllu á hvolf í hausnum á okkur“ – og breyta algjörlega því hvernig við lítum á aðstæður sem okkur fannst við hafa áður skilið til fulls.
UPPLÝSINGAR SEM ÖGRA
Sólin er í Bogmanni og okkur finnst við standa í sannleikanum – en Tunglið í samstöðu við Úranus kemur með upplýsingarnar sem ögra þeim „sannleika“.
Drifið áfram af spennuafstöðu við Mars, og með Tunglnóðurnar (Suðurnóðan er fortíð okkar og Norðurnóðan er framtíðin) sem spila stórt hlutverk, er nánast ómögulegt að horfa framhjá þessari innsýn. Það er engu líkara en við séum komin að tímamótum og getum ekki lengur frestað einhverju sem við höfum hikað lengi við að gera.
Togið í átt að einhverju öðru verður svo sterkt, svo öflugt, að okkur finnst við verða að fylgja því – nánast eins og um örlög sé að ræða.
KJARNI EINSTAKLINGSINS
Svona getum við upplifað ytri pláneturnar – Úranus, Neptúnus eða Plútó – þegar ferli þeirra um himinhvolfið virkjar eitthvað innra með okkur sem við höfum enn ekki tengst meðvitað.
Ytri pláneturnar eru ósýnilegar berum augum og ólíkt Venusi, Mars eða Júpíter getum við ekki séð þær þótt við horfum upp í himininn. En þær eru engu að síður þar og starfa handan meðvitaðrar skynjunar okkar.
Þær koma ekki með beinum hætti inn í meðvitund okkar heldur hefur orka þeirra áhrif á okkur eins og tog eða löngun, eitthvað sem við getum ekki útskýrt, en dregur okkur í átt að breytingum, svo okkur getur jafnvel fundist við vera strenjabrúður, sem stjórnað er af einhverju ytra afli.
Það er einmitt þess vegna sem við náum ekki alveg utan um hvað er að gerast, því togið getur orðið svo sterkt. Þegar við hins vegar skynjum hvað við viljum og hvers vegna, höfum við meira svigrúm til að velja hvernig við bregðumst við.
AÐ VITA ÞAÐ EKKI
En hér er afstaðan „að vita það ekki“ hluti af sjálfri breytingunni. Við vitum enn ekki hvað við eigum eftir að reyna, eða hver við gætum orðið. Við fáum bara glimt af því. Við finnum það á okkur.
Séð frá þessu sjónarhorni bera ytri pláneturnar köllun til kjarna einstak-
lingsins – að verða að því sem við erum í raun – og opna dyr að möguleikum sem við höfum enn ekki upplifað.
ÍKAROS-FLÉTTAN
Þótt við þurfum þetta tog til að losna úr festunni, hefur það líka á sér aðra hlið. Ef við fylgjum toginu án þess að vera meðvituð um hvað knýr okkur áfram, getur löngunin gleypt okkur – eða orðið að Íkaros-fléttunni.
Íkaros og faðir hans, Dædalos, meistarasmíðurinn, voru fangar í völundarhúsi, sem er táknmynd þess að vera svo fastur í lífinu, að hver beygja sem tekin er virðist leiða okkur aftur á sama stað.
Dreginn áfram af því sem við gætum kallað úranískt kall til frelsis, smíðaði Dædalos vængi úr fjöðrum og vaxi, tæki sem gerði honum og Íkarosi kleift að rísa upp yfir völundarhúsið og flýja.
Þeir tóku á flug en Íkaros, yfirbugaður af alsælunni, hirti ekki um viðvaranir föður síns og flaug of nálægt Sólinni. Heillaður af sælu flugsins reis hann hærra og hærra – uns vaxið bráðnaði, fjaðrirnar dreifðust og hann steyptist í hafið.
OF HÁTT OF LANGT , OF FLJÓTT
Saga Íkarosar er ein af frægustu goðsögnum Grikklands og myndin af honum þegar hann fellur í hafið, vængirnir bráðnaðir, er eitt mest málaða atriðið úr Grísku goðsögnunum.
Eitthvað hrærir við okkur þegar við horfum á þá mynd – því svo mörg okkar höfum einhvern tímann svarað úraníska kallinu, en það var „of hátt, of langt, of sljótt“, og við hröpuðum aftur til jarðar.
Hugsum um aumingja Íkaros. Hann var lengi fastur í völundarhúsinu. Þegar vængirnir loksins komu var gleði hans því alveg skiljanleg.
Á sama hátt má segja að því lengur sem við erum föst í lífi okkar, því dýpri verður aftengingin – og því sterkara togið þegar ytri pláneta bankar uppá.
ÓMEÐVITAÐ TOG
En það sem skiptir máli hér er að horfa á þetta ómeðvitaða tog og spyrja hvað knýr það. Hvað þýðir það? Hvaðan kemur það?
Ef þú, á fullu Tungli í Tvíburum í samstöðu við Úranus, finnur skyndilega fyrir löngun til að hætta í vinnunni, hefja nýtt samband eða kaupa hraðskreiðan bíl, er spurningin ekki bara: „Á ég að gera þetta eða ekki?“
Spurningin er líka: „Hvaðan kemur þetta tog – og hvað þýðir það?“
Hvaðan kemur þessi þörf fyrir frelsi, frelsun eða spennu?
Er það sem við teygjum okkur eftir staðgengill fyrir eitthvað annað? Er það kannski flýtileið sem gerir okkur kleift að sleppa við að horfast í augu við dýpri og flóknari málefni eða aðstæður í lífi okkar sem eru ekki jafn „spennandi“?
RÉTTA SKREFIÐ
Okkur gæti fundist frelsandi að hætta í vinnunni og stundum er það „rétta“ skrefið þegar okkur er nóg boðið. Það gæti jafnvel verið einmitt það sem gera þarf.
En kannski verður það sem liggur að baki þessu togi til að flýja ekki í raun flúið með því að hætta skyndilega. Kannski biður það okkur líka um að skoða afstöðu okkar til vinnunnar, samskiptastíls okkar, eða hliða á okkur sjálfum sem við höfum ekki viðurkennt.
Án þess að viðurkenna þann hluta gætum við hætt í vinnunni – og fundið okkur á endanum í annarri útgáfu af sama völundarhúsi. Þegar við gefum því gaum sem togar í okkur, getur næsta skref orðið það að horfast í augu við Skuggann okkar.
EKKERT AÐ TOGI ÚRANUSAR
Í raun er ekkert að togi Úranusar. Það er rétta kallið – séð frá sjónarhóli þróunarinnar. Í raun kemur þetta tog ytri plánetanna frá Æðra sjálfinu – þeim hluta okkar sem teygir sig út fyrir þá mynd sem við höfum nú af okkur sjálfum.
Æðra sjálfið okkar vill að við köfum að okkar innsta kjarna og Egóið eitt og sér ræður ekki við það. Þetta ferli krefst þess að við samþættum Skuggann okkar; annars höldum við áfram að samsama okkur aðeins við lítinn hluta af því hver við erum og hvað það er sem við erum fær um.
Ef við reynum að takast á við Skuggann beint, getur hugurinn fundið sniðugar krókaleiðir eins og að snúa öllu upp í rökhugsun, eða einbeita sér að hlutum sem kunna að vera erfiðir en ná ekki endilega til kjarna skuggafléttunnar okkar.
Í þeirri fléttu er að finna fíknir okkar, svo og ýmsar áráttur og vanamynstur sem stjórna í raun lífi okkar, svo við erum alltaf að lifa „sama daginn aftur og aftur“ – svona „Groundhog Day“ eða „The Truman Show“, svo vísað sé í tvær þekktar kvikmyndir, þar sem sami dagurinn endurtók sig aftur og aftur.
En þegar við nálgumst Skuggann út frá löngun okkar og draumum – út frá Úranusi og ytri plánetunum – förum við beint að rótinni.
Heimild: Þýtt og aðlagað út frá texta frá Astro Butterfly
Myndir: Shutterstock og af korti fyrir afstöður plánetanna á fullu Tungli 24.11.16.
STJÖRNUKORTIN MÍN ERU MEÐ 20% AFSLÆTTI TIL ÁRAMÓTA.
EF ÞÚ ÁTT EKKI KORT – GETURÐU PANTAÐ ÞITT HÉR!