Í því umbreytingarferli sem heimurinn er að fara í gegnum núna, er talað um að hin kvenlega orka eigi eftir að spila stórt hlutverk. Við eigum þess kost að verða HIN UMBREYTTA KONA. Það fylgir hækkun tíðninnar úr þriðju og upp í FIMMTU VÍDD og við getum vakið hið guðlega kvenlega innra með okkur. Talað erum “divine feminine” á ensku, en enska orðið divine þýðir reyndar ekki bara guðlegt, heldur líka umbreytt. Í raun snýst það um að við sem konur þorum að verða hin andlega Gyðja og ljósmikla kona sem í okkur býr.

Til að svo geti orðið og til að konur geti stígið inn í sitt sjálfræði, þurfa þær að losa sig úr hömlum gamalla minninga, úr viðjum vanamynsturs og ótta og vekja til vitundar hina sterku konu sem innra með þeim býr.

Þetta hef ég verið að læra um undanfarna mánuði og býð því upp á eins mánaðar námskeið fyrir þær konur sem vilja stuðning við umbreytinguna. Við komum til með að hittast einu sinni í viku á Zoom fundum og vinnum síðan með ákveðin verkefni hverja viku til að styrkja okkur sjálfar og efla. Fundirnir verða haldnir dagana 6. – 13. – 20. og 27. maí klukkan 19:30 öll kvöld.

Á hverjum fundi verður fræðsla og í lok fundar verð ég með verkefni fyrir þátttakendur til að vinna með til að efla sína andlegu innri orku og styrkja sig sem hina umbreyttu konu.

Að auki býð ég upp á sameiginlega hugleiðslu á Wesak hátíðinni eða Búddha-Tunglinu, sem verður þann 12. maí, en þetta er eitt af mikilvægustu Tunglum ársins.

Ég set líka upp Facebook hóp, þar sem ég get verið í samskiptum við hópinn og hægt er að deila reynslu og hugmyndum, koma með spurningar eða leita aðstoðar.

Námskeiðið fer fram á Netinu og allir fundir eru teknir upp, svo ef þú missir af einum geturðu alltaf hlustað á upptöku. Aðgangur að námskeiðsefninu er opinn til 15. júlí.

Við vinnum meðal annars með:

  1. Styrkingu orkustöðvanna en þær eru innri farvegur orkunnar í líkama okkar.
  2. Leiðir til að losa okkur við gamlar sannfæringar og sannfæringakerfi.
  3. Leiðir til að losa okkur við óttann, sem er svo margþættur og flókinn – svo og kvíðann, sem er önnur birting af óttanum.
  4. Hvað það er í eigin lífi sem er ekki lengur að þjóna okkur og hvernig við aftengjum okkur því.
  5. Ákveðnar leiðir til að taka betur á móti LJÓSINU sem er sífellt að aukast.
  6. Leiðir til að ryðja hindrunum úr vegi og láta drauma okkar rætast.

Ég geri ráð fyrir að vera með áframhaldandi námskeið í haust fyrir þær sem vilja halda áfram að þjálfa sig í því að verða HIN UMBREYTTA KONA, en leiðbeinendur mínir ýttu mikið á mig að hefjast handa nú fyrir sumarið – og því svaraði ég kalli og setti upp þetta námskeið.

 

Námskeiðið kostar 29.700 kr.*

*Ath! Ekki er hægt að fá námskeiðið endurgreitt, en hægt er að færa sig á næsta námskeið eða láta greiðsluna ganga upp í eitthvað annað námskeið sem í boði er.

UMSAGNIR

Væntanlegt

image_print
Deila áfram