MELTINGARENSÍM ÞEGAR ÁLAGIÐ ER MIKIÐ

Jólamatur og hvers kyns kræsingar eru ekki lengur bara í boði yfir jólahátíðina sjálfa. Veisluhöldin hefjast með tilboðum frá veitingahúsum og á vinnstöðum löngu fyrir jólin sjálf. Meltingarkerfið er því oft undir miklu álagi. Þá getur meltingarensímblanda eins og Digest Ultimate frá NOW komið sér vel.

Prófanir hafa sýnt að þessi ensímblanda heldur gildi sínum í gegnum pH (sýruumhverfi) gildi meltingavegarins og stuðlar að sem bestri upptöku næringarefna með því að hjálpa til við niðurbrot á prótínum, kolvetnum og fitu, svo og mjólkuvörum, korni og ómeltanlegum trefjum eins og finna má í grænmeti og baunum. Ég hef verið að taka Digest Ultimate ensímin inn í nokkrun tíma og verð að segja að þau hafa skilað frábærum árangri, en eitt af einkennum A-blóðflokks (minn blóðflokkur) er að ensímframleiðsla líkamans minnkar með aldrinum.

ENSÍM ERU MIKILVÆG EN GETA SKEMMST

Meltingarensím, svo og frumu- og kerfistengd ensím í líkamanum eru mjög mikilvæg til að tryggja almenna vellíðan. Þau gegna meðal annars mikilvægu hlutverki í meltingu og næringarupptöku, í viðbrögðum ónæmiskerfisins, vitrænni hrörnun og afeitrun frumnanna. Þessi kerfi berjast um að fá ensím til að líkaminn geti nýtt sér þau.

Þegar amínósýrur innan ensímanna skemmast, eyðileggjast ensímin og geta ekki lengur unnið starf sitt. Þessi eyðilegging getur orsakast af einhverju eftirfarandi:

Allur unninn og mikið soðinn matur inniheldur mikið af skemmdum ensímum. Þau valda ofnæmisviðbrögðum í líkamanum og leið til árása á hann. Þessi mikið unna og ertandi fæða er háð góðum ensímum í líkamanum til að hún meltist. Hún stelur því í reynd ensímum úr kerfum hans.

Lífsstíls- og umhverfisþættir sem ganga mikið á ensím líkamans eru meðal annars mikil loftmengun, lyfjanotkun, ónógur svefn og streita tengd samskiptum og fjármálaáhyggjum. Flestir í samfélögum nútímans búa við þetta álag og það veldur ensímskorti í líkamanum.

HVER ER ÁVINNINGURINN AF ÞVÍ AÐ TAKA MELTINGARENSÍM?

Ensímin eru meðal mikilvægustu formgerða í líkamanum. Þau eru langar keðjur prótína sem taka á sig sérstakt form og vinna eins og lyklar sem opna ákveðnar læsingar í líkamanum. Hér er listi yfir ávinninginn af því að taka inn meltingarensím en þau draga úr bólguþáttum og veita almenna orkuaukningu.

LÆKNING FYRIR MELTINGUNA

Þeir sem stunda óhefðbundnar lækningar ráðleggja meðal annars meltingarensím sem hluta af meðhöndlum á eftirfarandi heilsufarsvanda:

Að auki er talað um að ensím lækki kólesteról líkamans. Yfirleitt eru meltingarensím tekin rétt fyrir mat eða með mat, en þegar þau eru tekin á fastandi maga eru þau sögð örva ónæmiskerfið, vinna á liðagigt, draga úr bólgum, bæta heilbrigði lifrar og vinna gegn krabbameinum.

Neytendaupplýsingar: Digest Ultimate fæst meðal annars í Nettó, Fjarðarkaupum og í helstu apótekum.

Aðalmynd: Can Stock Photo/szefei – Annað myndefni: Guðrún Bergmann

Heimildir: Grein á síðu DrJockers.com og á Verywellhealth.com

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Deila áfram