MATARFLÓÐIÐ Í JÓLAMÁNUÐINUM

MATARFLÓÐIÐ Í JÓLAMÁNUÐINUM

Vikurnar framundan, jólahlaðborð og jólaboð kalla oftast á lausnir fyrir þá sem eru á sérfæði, eru með fæðuóþol eða sykurfíkn, svo eitthvað sé nefnt. Alls staðar er ofgnótt af mat, sælgæti í boði í verslunum og á vinnustöðum og margir halda að bara af því að maturinn sé í boði, þurfi að borða hann allan. Málið er að það er alltaf hægt að velja hvað maður borðar, en til að hægt sé að velja þarf yfirleitt að ákveða fyrirfram hvernig best sé að takast á við þetta tímabil, án þess að missa tök á mataræðinu með tilheyrandi skaða fyrir heilsuna.

Hér eru nokkur ráð sem gefa þér hugmynd um hvernig gott er að fara nokkurn veginn skaðlaust í gegnum þessa hátíð ljóss og friðar, sem líka hefur orðið að mikilli matarneysluhátíð. Við þurfum nefnilega ekki að borða meira bara af því að það eru jól.

HAFÐU PLAN

Það er mjög mikilvægt að hafa eitthvað plan og skipuleggja sig vel. Ef þú ert með glúten- eða mjólkuróþol, þarftu að velja að forðast ýmislegt á jólahlaðborðum og veisluborðum. Ef þú ert á leið á jólahlaðborð er gott að hafa með sér sneið af glútenlausu brauði (ég nota glútenlaust hafrabrauð frá Brauðhúsinu í Grímsbæ), ef þú heldur að þú viljir borða brauð með einhverju sem er á hlaðborðinu – eða sleppa bara brauðinu alveg. Sama á við um veislur en ef þú þekkir gestgjafann vel, geturðu haft samband og spurt hvað hann ætli að bjóða uppá og gert þínar ráðstafanir út frá því.

Á þessum tíma árs er líka allt fljótandi í sælgæti alls staðar. Til að freistast ekki í sykrað mjólkursúkkulaði eða önnur sætindi, er gott að vera alltaf með dökkt súkkulaði, sem sætt er með stevíu með sér. Þá er hægt að njóta sætinda með öðrum, án þess að detta í ofneyslu.

BORÐAÐU HÆGT

Þetta er ein af þessum gullnu reglum, að borða hægt og tyggja matinn vel. Njóta hvers munnbita, nánast svo vel að þú getir greint allt sem í honum er, krydd og annað. Önnur regla er að fá sér bara einu sinni á diskinn. Ef um jólahlaðborð er að ræða, veldu þá vel hvað fer á forréttadiskinn. Láttu svo líða smá tíma þangað til þú ferð og færð þér aðalrétt og láttu duga að fá þér bara einu sinni á þann disk líka.

Ef þú ert með rauð- eða hvítvínsglas með matnum, hafðu þá líka vatnsglas við höndina og dreyptu á því samhliða víninu. Ef þú vilt fá þér eftirrétt, er gott að vera með á hreinu hvað er í honum – eða þá að vera með dökkt súkkulaði sætt með stevíu með sér og fá sér bita af því með kaffi- eða tebolla eftir matinn.

NOTAÐU MELTINGARENSÍM

Upp úr fertugu dregur mjög úr framleiðslu á meltingarensímum í maga okkar og þörmum. Því er gott að taka alltaf inn 1 hylki af meltingarensími fyrir matinn. Ég nota alltaf Digest Ultimate frá NOW og hef gert lengi. Finn svo mikinn mun á meltingunni þegar ég geri það, svo ég tek inn eitt hylki fyrir hverja máltíð. Ef þú ert með glútenóþol og heldur að maturinn sem þú ert að borða á veitingastað sé smitaður af glúteni er líka gott að taka 1 hylki af Gluten Digest frá NOW fyrir máltíð.

TRYGGÐU GÓÐA LOSUN

Fátt er ömurlegra en að enda með harðlífi um jólin. Auðvitað er hætta á því þegar verið er að borða alls konar mat, sem við borðum ekki dagsdaglega. Með því að taka reglulega inn Magnesium & Calcium, Reverse ratio frá NOW, tryggirðu bæði nægar birgðir af þessu mikilvæga steinefni og góða losun, því í blöndunni er meðal annars magnesíum oxide, sem hefur losandi áhrif á hægðir.

Mynd: CanStockPhoto / Melpomene