LÉTTIST UM 10 KÍLÓ Á 18 DÖGUM

Kona sem var á HREINT MATARÆÐI námskeiði hjá mér fyrir nokkrum árum, óskaði eftir því að deila nafnlaust reynslu sinni með öðrum, þar sem hún náði svo frábærum árangri. Á 18. degi hreinsikúrsins, sem stendur í 21 dag, höfðu bólgur í hnjám og fótum minnkað verulega, exem í hári var nánast horfið, svefninn var orðinn mun betri og sem bónus hafði hún léttst um 10 kíló. Rétt á hæla hennar kom svo karlmaður sem hafði léttst um 9,5 kg á jafnlöngum tíma – en gefum henni orðið:

GAT VARLA BEÐIÐ

“Ég ákvað að fara á HREINT MATARÆÐI námskeiðið til að vinna bug á bólgum og liðverkjum í líkamanum og athuga hvort mér tækist að bæta svefninn. Ég var komin með svo mikið meira en nóg af daglegri vanlíðan og verkjum að ég gat varla beðið eftir að byrja. Að auki átti ég mér þann draum að léttast eitthvað í leiðinni.

Ég fann að ég þurfti á hvatningu að halda til að gera breytingar á mataræðinu, því ég var farin að hjakka svo mikið í sama farinu. Mér fannst líka kominn tími til að hægja aðeins á mér, því maður er alltaf á svo miklu spani og gera eitthvað uppbyggjandi fyrir mig.”

MUNUR EFTIR FYRSTU VIKUNA

“Strax eftir fyrstu vikuna á hreinsikúrnum fann ég mikinn mun á eigin líðan. Ég hafði fylgt ráðum Guðrúnar um að fara semma að sofa og svaf reyndar meira en vanalega. Kannski var það vegna þess að mér fannst ég allt í einu hvílast betur og ég var ekki að vakna eins oft á nóttunni. Það var alveg dásamlegt.”

STUÐNINGURINN MIKILVÆGUR

“Vikulegu fundirnir með Guðrúnu og daglegir póstar hennar í Facebook hópnum okkar hafa verið svo hvetjandi. Ég skil líka betur núna af hverju fólk ákveður að fara á námskeið til að fara í gegnum svona hreinsikúr. Stuðningurinn frá öðrum í hópnum skiptir svo miklu máli.

Á fundum og í Facebook hópnum höfum við haft tækifæri til að skiptast á skoðunum, deila uppskriftum, hvetja hvort annað áfram og leiðbeina með það hvar vörurnar sem við erum að nota fást – og svo auðvitað deila myndum af því sem við erum að elda. Þessi stuðningur hef skipt alveg ótrúlega miklu máli.”

ÁVINNINGURINN FRÁBÆR

“Ávinningurinn af þessu námskeið hefur ekki valdið mér vonbrigðum. Á 18. degi (og ég á enn þrjá daga eftir) hafði dregið verulega úr bólgum í fótum og við hnén, ég er öll léttari á mér, exemið að hverfa úr hársverðinum og svo brosti ég bara út að eyrum eftir að hafa séð nýjar tölur á baðvigtinni – því ég hafði léttst um 10 kíló.

Ég finn að þetta mataræði gerir mér svo gott að ég ætla að fylgja því í meginatriðum áfram eftir að hreinsun lýkur – og til að ná meiri árangri hef ég skráð mig aftur á næsta námskeið hjá Guðrúnu, sem verður í október.”

HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á AÐ BÆTA HEILSUNA?

Sagan hér að framan er bara ein af fjölmörgum dæmum um bætta líðan, sem fylgir breyttu mataræði og bættum lífsvenjum. Þessi kona léttist óvanalega mikið, en mjög algengt er að konur séu að léttast um þetta 4,5-6,5 kíló á 3 vikum. Karlmenn eru almennt að léttast þetta frá 4 og upp í 11 kg.

Hreinsikúrinn er þó ekki hugsaður sem megrunarkúr. Aðalfókusinn er á að hreinsa uppsöfnuð eiturefni úr líkamanum með ákveðinni fæðu, bætiefnum og hæfilegum skammti af jákvæðu hugarfari.

Ef þú hefur áhuga á HREINT MATARÆÐI námskeiði er sniðugt að skrá sig á Póstlistann til að fá upplýsingar um námskeið, skráningartíma og afsláttartilboð.

Þessi grein var fyrst birt í september árið 2018! Rúmlega 2.100 manns hafa tekið þátt í HREINT MATARÆÐI stuðningsnámskeiðunum, sem nú eru orðin sjötíu og átta talsins.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum!

Mynd: CanStockPhoto / gina_sanders

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Deila áfram