Þann 22. apríl var alþjóðlegur DAGUR JARÐAR og í dag þann 25. apríl er DAGUR UMHVERFISINS hér á landi. Þessir dagar eru góð áminning og ættu að vera hvatning til okkar allra um að hugsa betur um umhverfi okkar.
Það er auðvitað að mörgu að huga í því sambandi, en það augljósasta er oft að flokka sorp og tína upp rusl. Við getum alltaf virt umhverfið með því að ganga betur um það, jafnvel svo vel að sá næsti sem þar kemur sjái ekkert nema hugsanlega fótspor okkar.
Stundum er líka gott að byrja innandyra og skoða hvort ekki sé rétt að skipta út hreinsiefnum heimilisins, til að þau hafi hvorki skaðleg áhrif á umhverfið né heilsu okkar. Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa sýnt að konum þar er hættara við brjóstakrabbameini en víða annars staðar og eru tilfellin tíðari meðal húsmæðra, sem við þrif heima anda oft að sér sterkum hreinsiefnum.
HEILSAN OG UMHVERFIÐ
Heilsan og umhverfið haldast gjarnan hönd í hönd, því það sem er skaðlegt fyrir Jörðina er líka skaðlegt fyrir líkamann. Því er mikilvægt að velja hreinlætisvörur sem innihalda hvorki efni sem eru skaðleg líkamanum við innöndun, né efni sem sem skaða ferskvatn eða sjó með mengandi innihaldsefnum.
Vörurnar frá Sonett eru frábær valkostur og það er engin afsökun að segja að þetta “umhverfisvæna dót þvoi ekki nógu vel”, eins og stundum er gert. Fyrirtæki eins og Sonett hafa í áraraðir þróða vandaðar og vottaðar vörur, sem unnar eru úr lífrænum og Demeter-vottuðum jurfahráefnum og þvo og þrífa ef eitthvað er, betur en vörur sem fullar eru af kemískum og skaðlegum efnum.
100% NIÐURBROT Í NÁTTÚRUNNI
Við framleiðsluna á Sonett eru hvorki notuð rotvarnarefni, ilmefni né kemísk litarefni. Vörurnar innihalda heldur ekki ensím og yfirborðsvirk efni og bleikiefnin eru án klórs. Vegna þessarar samsetningar á innihaldsefnum brotna Sonett vörurnar alveg 100% niður í náttúrunni. Sú staðreynd er sérlega mikilvæg því þá skaða þær hvorki jarðveg né ferskvatn og sjó.
VÖRULÍNAN ER BREIÐ
Þú finnur allt til að láta heimilið glansa og ilma dásamlega í Sonett vörulínunni. Í vörurnar eru notaðar náttúrulegar ilmkjarnaolíur, sem unnar eru úr vottuðum lífrænt ræktuðum jurtum. Sjaldgæft er að olíurnar valdi ofnæmisviðbrögðum og því eru vörurnar öruggar fyrir nánast alla.
Hvort sem þú þarft alhreinsi, handsápur, gólfsápur, glerúða, uppþvottalög, uppþvottavélatöflur, þvottaefni eða salernishreinsi, finnurðu allt í Sonett vörulínunni. Ef þú ert með sveppavandamál í heimkynnum þínum er frábært að nota sótthreinsiúðann frá Sonett. Úðinn er framleiddur úr alkahóli og ilmkjarnaolíum og eyðir á áhrifaríkan hátt sveppa- og bakteríugróðri, salmonellu o.fl. Honum má úða á rök svæði, meðal annars gluggakistur, baðherbergi, rúmdýnur og fleira.
Sonett eru því vörur sem vernda bæði umhverfið og heilsuna.
Neytendaupplýsingar: Sölustaðir Sonett eru Blómaval, Fjarðarkaup og Hagkaup
Um höfund
- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
- Greinar19. janúar, 2025FYRSTA NÝJA TUNGL ÁRSINS 2025
- Greinar16. janúar, 2025HVER STJÓRNAR ÞÍNUM LÍKAMA?
- Greinar13. janúar, 2025FULLT TUNGL Í DAG
- Greinar11. janúar, 2025YFIRLIT YFIR ÁRIÐ 2025