HÁÞRÝSTINGUR OG MÖNDLUMJÓLK

Hvað á þetta tvennt sameiginlegt, háþrýstingur og möndlumjólk? Kannski ekkert sérstakt, en þú kemst þó að raun um hvers vegna ég er að skrifa um þessi tvö atriðið. Mér finnst alltaf svo frábær þegar þátttakendur á HREINT MATARÆÐI námskeiðunum mínum má góðum árangri. Ekki er síður skemmtilegt þegar myndast góð samstaða í námskeiðshópnum og fólk er duglegt að deila reynslu sinni, myndum af því sem það er að elda eða uppskriftum sem geta hjálpað hinum í hópnum í hreinsunarferlinu.

Inga Rós Baldursdóttir er ein af þessum duglegu, en hún var á námskeiði hjá mér í apríl. Hún er stöðvarstjóri Bílaleigu Akureyrar á Keflavíkurflugvelli og því í miklu álagsstarfi auk þess sem hún er með stórt heimili. Þegar hún kom á námskeiðið hafði hún mestar áhyggjar af háþrýstingi, sem var 198/168 þrátt fyrir að hún væri á lyfjum, í raun lyfjategund númer tvö, en hvorug lyfin virtust slá á hann. Ég sagði henni að háþrýstingur hjá mörgum á námskeiðunum mínum hefði lækkað, svo hún skyldi bara sjá hvort ekki yrðu breytingar á þessum þremur vikum.

Meðan á námskeiðinu stóð var hún dugleg að deila myndum af bústum og ýmsu sem hún var að matreiða og fylgdi leiðbeiningum hreinsikúrsins vel eftir. Í lok námskeiðs mældist háþrýstingur hennar 130/78. Hún var enn á lyfjum, en samkvæmt lækninum og náttúrulækninum Carolyn Dean, höfundi The Magnesium Miracle, leiðir skortur á magnesíum í líkamanum oft til háþrýstings. Undir álagi eyðum við nefnilega þessu mikilvæga steinefni upp. Á HREINT MATARÆÐI námskeiðunum er hluti af ferlinu að taka ríflegan skammt af þessu nauðsynlega steinefni, svo hugsanlega varð það og breytt mataræði til þess að háþrýstingurinn lækkaði hjá Ingu Rós.

GÓÐ NÝTING Á MÖNDLUNUM
Inga Rós býr alla jafnan til sína eigin möndlumjólk svona 2-3svar í viku. Hún býr til einfalda og óbragðbætta möndlumjólk fyrir bústin, en bætir svo döðlu eða vanillu í þá mjólk sem hún vill drekka. En þessi duglega kona er nýtin, svo ég bað hana að deila því hvernig hún gerir mjólkina og notar hratið, svo hér er uppskriftin.

  • 1 bolli af möndlum, lagður í bleyti í köldu vatni yfir nótt.
  • Möndlurnar skolaðar næsta morgun og settar í blandara ásamt 4 bollum af köldu vatni. Allt blandað vel saman.
  • Mjólkin síuð í gegnum grisju eða nælonsokk – og voila! Möndlumjólkin komin.
  • Hratið eða afgangurinn af möndlunum sett í smurt eldfast mót og bakað við 100-150°C hita í 15-20 mínútur.
  • Þegar hratið er alveg þurrt og hefur kólnað er það sett í lítið NutriBullet glas og malað í mjöl, sem hægt er að nota í bakstur, til að steikja fisk, í konfekt eða kökugerð.

Þeir sem vilja þykkari eða rjómakenndari mjólk en Inga Rós gefur hér uppskrif að, nota minna af köldu vatni í möndlumjólkurgerðina. Úr þessari uppskrift kemur 1,25 l af möndlumjólk, sem geymist í nokkra daga í ísskáp í glerflösku. Vaninn er orðinn ríkur hjá Ingu Rós, því nú er hún farin að gera möndlumjólkina líka í útilegum, því NutriBullet blandarinn er tekinn með í hjólhýsið. Börnin hennar elska að fá búst þegar þau eru búin að vera úti að hlaupa og leika sér og fá því góða og holla orku frekar en eitthvað nammi og gossull.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.

Ef þú hefur áhuga á HREINT MATARÆÐI námskeiði þegar þau hefjast aftur í haust, skráðu þig þá endilega á PÓSTLISTANN. Þeir sem eru á honum fá alltaf sérstök tilboð og afslætti þegar skráningar hefjast.

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
  • 591 Posts
  • 0 Comments
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Deila áfram