Síðustu vikur hef ég verið mjög spennt að fylgjast með hinum óútskýranlega fljúgandi furðuhlut, sem kallaður hefur verið 3I-ATLAS. Ég lít á hann sem tákn frá The Galactic Federation of Light – eða Alheims samtökum Ljóssins. Það er svo margt sem gefur til kynna að þessi fljúgandi furðuhlutur sem þeysist um geiminn á ógnarhraða sé að færa okkur nýja og hærri tíðni.
HÆRRI TÍÐNI KÆRLEIKANS
Allar líkur eru á að þegar 3I/ATLAS verður næst Jörðu, en þó langt í burtu, þann 19. desember 2025, muni þessi óþekkti hlutur í geimnum bera með sér sterka hjartaorku sem styður mannkynið við að tengjast kærleikanum á nýjan máta. Á sama tíma mun þessi fljúgandi furðuhlutur að öllum líkindum „skanna“ tíðni okkar – til að meta hvort við séum að læra, vakna til aukinnar vitundar og vaxa.
Þetta er tækifæri okkar til að sýna Alheiminum að við séum tilbúin til að taka næsta skref, inn í hærri tíðni kærleika. Þetta eru ekki endalok einhvers, heldur möguleiki sem ég og margir aðrir velta fyrir okkur. Sé 3I-ATLAS að koma til að hjálpa okkur að auka kærleiksorkuna á Jörðinni, mun sú tíðni sem við sendum frá okkur (kærleikur) enduróma og magnast.
GAMLIR SPÁDÓMAR
Forn menningarsamfélög eins og til dæmis hjá HOPI indíánum í Arizona, hafa lengi talað um tíma þar sem mannkynið færist úr einu tíðnisviði upp á annað og að Jörðin endurnýi sig. Við finnum flest að þessi umbreyting er hafin – að heimurinn okkar er að breytast. Mörg okkar hafa fundið fyrir sársauka, sundrungu og þreytu á þessum endalausu stríðsátökum á Jörðinni og í raun átökum manna á milli.
Þegar allt virðist vera að hrynja og við að lenda á botninum, er aðeins ein leið eftir. Upp! Upp í Nýja Jörð, inn í hærri tíðni og meiri kærleika. Minn skilningur er sá að 3I-ATLAS fylgi orka sem verður hvati að þeirri umbreytingu. Breytingin sjálf er hins vegar á okkar ábyrgð og byggist á því hvernig við meðtökum þessa kærleiksorku.
VITUNDARVAKNINGIN MIKLA
Allt er þetta hluti af Vitundarvakningunni miklu, sem ég hef verið að skifa um undanfarin fimm ár – meðal annars í bók minni LEIÐ HJARTANS. Við erum að vakna til vitundar um hversu öflug við getum verið sem einstaklingar, hversu miklum skapandi krafti við búum yfir, hversu kærleiksrík við getum verið og hversu mikla heilandi orku við getum gefið frá okkur.

Eitt af því sem gerist væntanlega í framhaldi af hækkandi tíðni kærleikans er að við förum að sýna hvort öðru meiri góðvild, faðma hvort annað og styðja og lyfta hvort öðru upp – í stað þess að tala okkur sjálf og aðra niður. Að skynja að við erum öll eitt og þegar einum gengur vel getur öðrum líka gengið vel.
MAGNAÐAR VETRARSÓLSTÖÐUR
Rétt fyrir Vetrarsólstöður sem verða þann 21. desember næstkomandi verður mögnuð uppröðun á plánetunum. Þann 19. desember kemur röð þeirra til með að verða:
Sól → Venus (~0.7 AU) → Jörð (~1.0 AU) → 3I-ATLAS (~2.3 AU). Með þessari uppröðun eru Venus og Jörðin í beinni línu á milli Sólar og 3I-ATLAS. Ég geri ráð fyrir að uppröðuninni fylgi gríðarleg kærleiksorka sem streymi til Jarðar og til okkar sem á Jörðinni búum.
Vetrarsólstöður verða því kjörið tækifæri til að fagna LJÓSINU og KÆRLEIKANUM. Hugleiða með vinum og vandamönnum. Faðma þá sem eru okkur mikilvægir. Segja þeim sem við höfum aldrei sagt: “Ég elska þig” – hvort sem það er maki, barn, foreldri eða barnbarn – og ekki hvað síst að muna að elska okkur sjálf, því við erum svo þess virði að vera elskuð af okkur sjálfum.
Undir öllum tölvupóstum hjá mér stendur: “Láttu ljós þitt skína eins og sú stjarna sem þú ert.” Við erum öll stjörnur, þótt sum okkar hafa lengi verið falin á bak við ský, þá skínum við samt – um leið og léttir til með hækkandi tíðni kærleikans.
Guðrún Bergmann
Myndir: Shutterstock.com
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar29. nóvember, 2025ÁHRIF PLÁNETANNA Á NÆSTUNNI
Greinar23. nóvember, 2025GÍFURLEGT ÞRÓUNARSTÖKK
Greinar20. nóvember, 2025MIKILVÆGASTA TUNGL ÁRSINS
Greinar13. nóvember, 2025HÆKKANDI TÍÐNI KÆRLEIKA

