GÚRKUR ERU GEGGJAÐAR

Meginatriðið greinarinnar:

  • Gúrkur eru vítamín- og steinefnaríkar.
  • Gúrkur draga úr þreytu og veita þér aukaorku.
  • Hægt er að losna við andremmu með því að setja gúrkusneið upp í góminn og halda henni þar í 30 sekúndur.

Greinarhöfundur: Guðrún Bergmann
Fylgstu með mér á Facebook og skráðu þig á Póstlistann, til að fá nýjustu fréttir og tilboð.


GÚRKUR ERU GEGGJAÐAR
Eftirfarandi upplýsingar um gúrkur fann ég fyrir nokkrum árum í The New York Times undir dálkaheitinu Spotlight on the Home. Í greininni koma fram skapandi og skemmtilegar leiðir til að leysa algeng vandamál með gúrkum. Sum þessara ráða eru algerlega geggjuð, önnur hafa heyrst áður en er alltaf gott að rifja upp. Þegar ráðin eru lesin er ekki annað hægt en furða sig á því hversu mikilli orku og efnum jurtaríkið býr yfir.

FYRIR HEILSUNA

  • Í gúrkum er að finna öll helstu vítamínin sem þú þarfnast daglega, því í einni gúrku má finna B1, B2, B3, B5 og B6 vítamín, fólin sýru, C vítamín, kalk, járn, magnesíum, fosfór, kalíum og sink.
  • Ef þú finnur fyrir þreytu síðari hluta dags er ágætt að velja frekar að teygja sig í gúrku en koffínhlaðinn gosdrykk. Í gúrkum er mikið af B vítamínum og kolvetnum, sem geta veitt þér aukaorku sem endist í nokkrar klukkustundir.
  • Viltu forðast þynnku eða ömurlega höfuðverki? Borðaðu þá nokkrar sneiðar af gúrku áður en þú ferð að sofa og þú vaknar hress og höfuðverkjalaus. Í gúrkum er nægilega mikið af sykri, B- vítamínum og rafvökum (electrolytes) til að endurnýja þau nauðsynlegu næringarefni sem líkaminn tapaði og koma á jafnvægi, svo forðast megi bæði þynnku og höfuðverk.
  • Ertu að leita leiða til að losa þig við það að langa í „eitthvað“ síðdegis eða á kvöldin? Gúrkur hafa verið notaðar öldum saman meðal annars af veiðimönnum, kaupmönnum og landkönnuðum sem skyndibiti til að slá á hungurtilfinninguna.
  • Þegar stressið tekur yfir og þú hefur ekki tíma til að fara í nudd, andlitsbað eða gufu, taktu þá heila gúrku, skerðu hana niður og settu í pott með sjóðandi vatni. Efnin og næringin í gúrkunni losna út í sjóðandi vatninu og streyma út í gufunni, sem býr til róandi og slakandi ilm sem hefur sýnt sig að slakar á streitu, meðal annars hjá nýbökuðum mæðrum og háskólanemum í lokaprófum.

FYRIR HÚÐINA

  • Ertu að leita að hraðvirkri og auðveldri leið til að losna við appelsínuhúð áður en þú ferð út í sólarfrí eða í sund? Prófaðu að nudda einni eða tveimur gúrkusneiðum yfir vandamálasvæðið í nokkrar mínútur. Plöntunefnin í gúrkunni valda því að kollagenið í húðinni þéttist og styrkir ytri hluta húðarinnar, svo það dregur úr sýnileika appelsínuhúðarinnar. Þetta virkar líka vel á hrukkur!!

FYRIR HEIMILIÐ OG GARÐINN

  • Ergir þú þig yfir móðunni sem hleðst á baðherbergisspegillinn eftir sturtubað? Prófaðu að pússa spegilinn með gúrkusneið. Það losar þig við móðuna og myndar um leið róandi ilm.
  • Eru lirfur og sniglar að eyðileggja beðin þín? Settu nokkrar sneiðar af gúrku í litla kökudós úr áli og garðurinn þinn verður laus við þessi sníkjudýr allt sumarið. Efnin í gúrkunni mynda efnahvörf við álið og við það myndast lykt sem mannfólkið nemur ekki en ertir svo sníkjudýrin að þau flýja af svæðinu.
  • Ertu búinn með WD 40 og þarft að laga ískrandi löm? Taktu gúrkusneið og nuddaðu henni yfir lömina og ískrið heyrir fortíðinni til.
  • Ertu að leita að „grænni“ leið til að hreinsa blöndunartæki, vaska og ryðfrítt stál? Taktu þá sneið af gúrku og nuddaðu það yfirborð sem þú vilt hreinsa með henni. Hún leysir ekki bara upp eldgamla flekki og fær tækin til að skína, því hún skilur ekki eftir sig rákir og skaðar hvorki fingur þína né fingurneglur meðan þú þrífur.
  • Varstu að skrifa með penna og gerðir mistök? Taktu hýðið af gúrkunni og nuddaðu því hægt yfir pennaskriftina til að eyða henni. Þetta virkar líka vel á lita- og merkipennaför sem börn skreyta stundum veggina með.

FYRIR LÚKKIÐ OG LYKTINA

  • Ertu á leið á mikilvægan fund eða í atvinnuviðtal og tekur allt í einu eftir að þú hefur gleymt að pússa skóna þína? Nuddaðu nýskorinni sneið af gúrku yfir skóna og efnin í henni mynda endingargóðan gljáa, sem lítur ekki bara vel út heldur hrindir líka frá sér vatni.
  • Nýkomin/-n úr hádegismat og kemst að raun um að þú ert ekki með mintu eða tyggjó til að hreinsa munninn? Taktu gúrkusneið og þrýstu henni með tungunni að efrigómnum í svona 30 sekúndur til að losa þig við andremmu, og plöntuefnin í gúrkunni drepa bakteríurnar í munni þínum sem valda andremmunni.

Neðst í greininni segir svo. Deildu þessu með öllum þeim sem eru að leita betri og öruggari leiða til að leysa dagleg vandamál. Þau hafa meðal annars ratað inn á Wiki Answers – og svo núna inn á vefsíðuna mína, enda eru gúrkur greinilega geggjaðar.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildi henni þá endilega með öðrum.

Tilboðsverð á HREINT MATARÆÐI námskeið í Grundarfirði, Reykjavík og á Akureyri og forsölu á HREINN LÍFSSTÍLL til 21. ágúst

Mynd: Can Stock Photo/msenbg

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
  • 591 Posts
  • 0 Comments
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Deila áfram