Fætur og fótleggir bera okkur ekki bara áfram í lífinu, heldur “standa undir okkur” alla ævi. Við leggjum ýmislegt á þá, ekki bara með líkamlegum þunga, heldur einnig áhyggjum og tilfinningalegum áföllum. Því er ekki að undra þótt þeir verði stundum þreyttir og þurfi á umhyggju að halda til að geta sinnt hlutverki sínu sem best.
Þrátt fyrir það gleymist oft að sinna þeim, húðin verður þurr á iljum og tám og það myndast sigg undir hælunum. Auðvitað er hægt að fara í fótsnyrtingu, en það er líka hægt að gefa þreyttum fótum næringu heimavið.
MERAKI RAKASOKKARNIR
Mér voru um daginn gefnir dásamlegir rakasokkar og fótakrem frá Meraki. Ég var svo spennt að prófa að það fyrsta sem ég gerði, eftir að hafa opnað pakkann var að bera á mig kremið og fara í sokkana. Settist svo niður með fæturna uppi í sófa og hvíldi mig í um klukkustund meðan kremið virkaði.
Það voru allt aðrir og hressari fætur sem komu upp úr sokkunum að þeim tíma liðnum, mjúkir og endurnærðir. Ég fylgdi leiðbeiningunum á umbúðunum, sneri sokkunum við og skolaði þá að innan og þurrkaði, full tilhlökkunar um að geta enn notað þá fjörutíu og níu sinnum enn, áður en ég þarf að kaupa mér nýja.
Get varla hugsað mér betri vinkonugjöf en þessa sokka og fótakremið, því hún veitir ánægju og vellíðan í svo langan tíma.
MAGNESÍUMOLÍA FYRIR SOGÆÐAKERFIÐ
Stundum verða fótleggirnir, einkum fyrir neðan hné, stífir og safna á sig smá bjúg. Oft er það vegna þess að sogæðakerfið í fótleggjunum er ekki að virka sem skyldi. Þá er gott að nýta sér eitt af þessum dásamlegu náttúrulegu ráðum og bera magnesíum-olíu á fótleggina, alveg frá ökkla og upp í nára.
Það er mikið salt í magnesíum-olíunni, svo hún verður dálítið klístruð á húðinni. Þess vegna er gott að bera hana á sig á kvöldin, fara í góðar náttbuxur og skola svo olíuna af í sturtunni næsta dag.
Sú olía sem ég nota er úr Zachstein námunum í Hollandi. Hallgrímur heitinn Magnússon læknir byrjaði á að flytja hana inn til landsins og ekkjan hans hefur haldið þeim innflutningi áfram.
Ég er viss um að fætur ykkar eiga eftir að elska þessar ráðleggingar ef þið nýtið ykkur þær.
Neytendaupplýsingar: Meraki vörurnar fást í Fakó í Ármúla og í Lyf og heilsu í Kringlunni.
Zachstein magnesíum-olían fæst í Betra líf á 3ju hæð í Kringlunni.
Myndir: Can Stock Photo/Elenathewise og mynd af vefsíðu Merakishop.dk
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar9. febrúar, 2025FULLT TUNGL Í LJÓNI 2025
Greinar26. janúar, 2025KÍNVERSKA ÁR SNÁKSINS
Greinar19. janúar, 2025FYRSTA NÝJA TUNGL ÁRSINS 2025
Greinar16. janúar, 2025HVER STJÓRNAR ÞÍNUM LÍKAMA?