ERTU Á LEIÐ Í SÓL Á NÆSTUNNI?

MEGINEFNI GREINARINNAR:

  • Það er gott að undirbúa húðina vel, hvort sem þú ætlar að láta geisla sólarinnar verma þig í fáa eða marga daga. Astaxanthin er frábært undirbúningsefni og leiðir jafnframt til þess að húðin verður fallega brún.
  • Astaxanthin frá NOW er unnið úr náttúrulegu karótínóíði sem bætir rakastig húðar, mýkt og teygjanleika og dregur úr fínum hrukkum, blettum og freknum.
  • Við sólbruna myndast bólgur í húðinni, en sé Astaxanthin notað reglulega fer það inn í húðfrumurnar og dregur úr þeim skaða sem útfljóubláu geislarnir valda húðinni.

Greinarhöfundur: Guðrún Bergmann
Fylgstu með daglegum færslum á FACEBOOK eða skráðu þig í HEILSUKLÚBBINN


FÁÐU FLOTTARI BRÚNKU Á KROPPINN MEÐ ASTAXANTHIN

Ef þú ert á leið í sólina á næstunni langar mig að gefa þér gott ráð. Hvort sem þú ætlar að láta geisla sólarinnar verma þig í fáa eða marga daga, er gott að undirbúa húðina sem best. Þegar ég er á leið til sólarlanda byrja ég alltaf að taka inn Astaxanthin frá NOW svona þrem til fjórum vikum fyrir brottför og tek það svo inn allan tímann meðan ég er í sólinni og í töluverðan tíma eftir heimkomu.

Í fyrsta sinn sem ég gerði þetta fyrir mörgum árum síðan, var ég bara í viku í sól. Var meira að segja bara úti í geislum hennar svona 2 tíma á morgnana og 2 tíma síðdegis. Það sem kom mér mest á óvart í því fríi var hversu brún ég varð og hversu jöfn brúnkan varð yfir allan líkamann. Síðan þá fer ég aldrei í sólarfrí án þess að taka það inn fyrir ferð.

FALLEG HÚÐ, FRÁBÆR SÓLARVÖRN

Rannsóknir sýna skýrt og greinilega að Astaxanthin verndar stærsta líffæri líkamans, sem er húðin. Það bætir rakastig hennar, mýkt og teygjanleika og dregur úr fínum hrukkum, blettum og freknum. Ef við sólbrennum myndast bólgur í húðinni, en ef við tökum inn Astaxanthin fer það inn í húðfrumurnar og dregur úr þeim skaða sem útfljóubláu geislarnir valda húðinni.

Astaxanthin verndar húðina sérstaklega gegn frumudauða sem orsakast af útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar. Ólíkt sólkremum sem borin eru á húðina, blokkar Astaxanthin ekki UV geislana, þannig að það kemur ekki í veg fyrir að UVB geislarnir breytist í D–vítamín í húðinni. Það ver húðina einfaldlega gegn skemmdum.

Gott er að taka Astaxanthin inn með mat, sem í er einhver fita (t.d. ólífuolía eða kókosolía) því það er fituuppleysanlegt bætiefni.

EN HVAÐ ER ASTAXANTHIN?

Astaxanthin er náttúrulegt karótenóíð sem finnst í þara, rækju, humar, kröbbum og laxi. Karótínóíðin eru litarefni sem myndast í náttúrunni og stuðla að góðri heilsu. Í dýraríkinu finnst mest af karótínóíði í vöðvum laxa og vísindamenn geta sér til um að það veiti þessum stórkostlegum fiskum þann kraft sem þarf til að synda upp ár og stórfljót, á móti straumnum.

Astaxanthin er öflugt andoxunarefni með víðtæk heilsufarsleg áhrif og ólíkt öðrum andoxunarefnum eins og beta-karótínI, zeaxanthini, E-, C- og D-vítamínum og seleníum, verður Astaxanthin aldrei að oxandi efni í líkamanum. Bæði Dr. Oz og Dr. Mercola segja að þetta sé það bætiefni sem ætti að vera í fyrsta sæti hjá okkur.

UNNIÐ ÚR ÖRÞÖRUNGUM

Astaxanthin frá NOW er unnið úr Haematococcus örþörungum (sjá mynd), sem framleiða astaxanthin til að vernda viðkvæma þörungana fyrir sterkum útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar og öðru álagi úr umhverfinu. Það er skylt beta-karótíni, lúteini og canthaxanthin, þótt einstök sameindauppbygging Astaxanthins geri það bæði öflugra og einstakara en önnur karótínóíð.

VIRKAR Á MÖRG KERFI LÍKAMANS

Auk þess að vera gott fyrir húðina er Astaxanthin öflugt og breiðvirkt andoxunarefni sem virkar vel á mörg kerfi líkamans, veitir vörn gegn geislum og stuðlar að heilbrigði augna, heila og hjarta. Að auki hefur það reynst vel gegn hvers konar krabbameinum, meltingarvandamálum, sykursýki, ýmsum meltingarsjúkdómum, lifrarsjúkdómum, ófrjósemi karla og nýrnabilun.

Astaxanthin dregur úr bólgum og nýtist vel gegn nánast hvaða bólguástandi sem er, allt frá liðvandamálum eins og liðagigt og hvers konar úlnliðsvandamálum eða tennisolnboga. Að auki hefur það stuðlað að auknum árangri hjá íþróttamönnum.

550 SINNUM ÖFLUGRA EN E-VÍTAMÍN

Astaxanthin er 550 sinnum öflugra andoxunarefni en E-vítamín og 6000 sinnum áhrifaríkara en C-vítamín. Það tekur Astaxanthin 12-19 klukkustundir að hámarkast í blóði þínu og eftir það brotnar það niður á 3-6 klukkustundum. Þess vegna þarf að taka það inn daglega.

Ef þú ætlar að nota það til að verja þig fyrir sólinni er gott að taka það í nokkrar vikur áður en farið er í sólarfrí til að leyfa því að byggjast upp í kerfinu. Nokkur önnur lykilatriði greina Astaxanthin frá öðrum karótínóíðum, en þau eru eftirfarandi.

1-VINNUR Á FRJÁLSUM STAKEINDUM

Líkt og önnur andoxunarefni, gefur Astaxanthin frá sér elektrónur sem gera frjálsar stakeindir hlutlausar, en frjálsar stakeindur eru oxandi efni sem hafa eyðileggjandi áhrif á vefi og líffæri líkamans. Það ferli eyðir upp flestum öðrum andoxunarefnum, en Astaxanthin býr yfir miklum birgðum, sem þýðir að það er virkara lengur – samanborið við önnur andoxunarefni.

Astaxanthinið helst líka óskaddað, sem þýðir að það eru engin efnaviðbrögð sem brjóta það niður, en slíkt gerist hjá flestum öðrum andoxunarefnum.

Astaxanthin ræður við fleiri frjálsar stakeindir í einu, en önnur bætiefni eins og t.d. C- og E-vítamín og ýmis önnur, sem ráða aðeins við eina frjálsa stakeind í einu. Astaxanthin getur ráðist á allt að 19 frjálsar stakeindir í einu, með því að mynda rafeindaský í kringum sameindirnar (mólekúlin).

2-HÆGIR Á ÖLDUNARFERLINU

Einn af einstökum eiginleikum Astaxanthins er að geta varið bæði vatns- og fituuppleysanlega hluta frumunnar. Karótínóíðin skiptast yfirleitt í vatnsuppleysanlega eða fituuppleysanlega hópa, en Astaxanthin tilheyrir hópi sem er mitt á milli og getur haft áhrif á bæði vatn og fitu.

Þetta þýðir að Astaxanthin sameindirnar geta haft áhrif á og þanið út himnu allra frumna og fljóta því ekki um í blóði okkar, heldur samlaga sig frumuhimnunni. Þetta á líka við um hvatberana (mítókondruna eða orkudreifingarhlutann) í frumum hjartans, sem er ein ástæða þess að Astaxanthin er svo gott fyrir hjartað.

Þar sem ástand hvatberanna (mítókondrunnar) skiptir miklu máli þegar við eldumst, er stuðningur við hvatberana í frumukjarnanum (mítókondruna) eitt af því besta sem hægt er að gera til að hægja á öldrunarferlinu.

3-VERNDAR TAUGAFRUMURNAR

Astaxanthin getur líka farið í gegnum heilablóðþröskuldinn, sem veitir því öfluga eiginleika til þess að vernda taugarnar. Á þennan hátt verndar Astaxanthin taugafrumurnar og hægir á áhrifum aldurstengdrar heilabilunar og skynhreyfigetu.

Að auki hafa rannsóknir á dýrum sýnt að Astaxanthin getur dregið verulega úr þeim skaða sem fylgir heilablóðfalli.

4-VELDUR EKKI OXUN

Einn af lykileiginleikum Astaxanthin er að það getur ekki valdið oxun. Mörg andoxunarefni, valda oxun frekar en andoxun, þegar nægilega mikið er til staðar af þeim. Þess vegna viltu ekki taka of mörg andoxandi bætiefni í einu. Þar sem astaxanthin veldur ekki oxun, jafnvel þótt mikið sé af því í líkamanum, er það bæði öruggara og öflugra andoxunarefni en mörg önnur.

Astaxanthin er í sérflokki þegar kemur að andoxandi eiginleikum þess, vegna þess að það síast inn í allar frumur líkamans. Því má eiginlega segja að það veiti frumum líkamans heildarknús. Í rannsókn sem unnin var árið 2007 kom í ljós að Astaxanthin var 6000 sinnum öflugra en C-vítamín, 800 sinnum öflugra en CO-Q10 og 550 sinnum öflugra en grænt te og 75 sinnum öflugra en Alpha lipoic acid.

5-ÖFLUGT GEGN BÓLGUM

Astaxanthin virkar á í það minnsta fimm mismunandi bólguferla, svo það er öflugt þegar kemur að því að slá á bólgur í líkamanum og viðhalda jafnvægi í líkamskerfinu. Auk þess að vinna gegn bólgum dregur það um leið úr sársauka, því það blokkar virkni mismunandi efna í líkamanum, sem undir öðrum kringumstæðum fengju þig til að stynja af sársauka. Einnig dregur Astaxanthin úr bólgumyndandi efnum sem ýta undir marga króníska sjúkdóma.

6-ASTAXANTHIN ER ÖFLUGT GEGN SÍÞREYTU

Þeir sem þjást af síþreytu ættu að taka inn Astaxanthin. Það kemur góðu jafnvægi á orku likamans og veitir aukið úthald. Það virkar líka vel fyrir fólk sem er komið með útbrunaeinkenni vegna vinnu eða álags. Þar sem Astaxanthin stuðlar að skjótu jafnvægi í líkamanum eftir æfingar, er það mjög gott sfyrir íþróttamenn sem vilja ná sem bestur árangri í því sem þeir eru að gera,

Hreint náttúrulegt Astaxanthin eykur úthald, styrk og bætir árangur líkamans almennt. Vísindamenn tengja það við þá orku sem gerir laxinum kleift að synda gegn straumnum, en mikið af Astaxanthin er í vöðvum laxa, enda borða þeir rækju og aðra skelfiska sem eru ríkir af því efni.

7-ASTAXANTHIN STYRKIR AUGUN

Astaxanthin býr yfir þeim eiginleikum að komast í gegnum ýmsar hindranir í líkamanum og ná meðal annars til sjónhimnunnar. Ýmsar klínískar rannsóknir sýna að Astaxanthin bætir augnheilsu sykursjúkra, dregur úr þreytu og álagi á augum og stuðlar að skýrari sjón.

Nú er bara spurningin: “Ertu ekki örugglega að taka Astaxanthin frá NOW alla daga?”

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.

Guðrún hefur haldið HREINT MATARÆÐI námskeið fyrir meira en ÞÚSUND þátttakendur á tæpum 3 árum. Námskeiðin byggjast á 24 daga hreinsikúr þar sem líkaminn fær tækifæri á að losa sig við eiturefni og endurnýja sig og heila.

Heimildir: Grein eftir Suzy Cohen, R.Ph. á Huffington Post

Myndir: Can Stock Photo / oleggawriloff