ER CLIPPER Í ÞÍNUM BOLLA?

Te er ekki lengur bara te í bolla, með mjólk og sykri, eins og það var einu sinni. Tedrykkja og teframleiðsla hefur tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum. Sumar af þeim breytingum má rekja aftur til ársins 1984, þegar Mike og Lorraine ákváðu að stofna Clipper og breyta teheiminum til frambúðar. Þeirra mantra varð strax í upphafi að “það sem væri í pokanum skipti mestu máli”.

Þeim tókst svo sannarlega ætlunarverk sitt og árið 1994 varð Clipper fyrsti teframleiðandi í Bretlandi til að vera einungis með “fair trade” te. Mikið af þeirra teum eru líka unnin úr lífrænt ræktuðum laufum. Allir tepokarnir eru óbleiktir svo þeir hafa ekki verið hvítaðir með kemískum efnum og klór. Því skiptir máli að hafa Clipper í þínum bolla.

GRÆNT TE Á SÉR LANGA SÖGU

Talið er að rekja megi notkun á grænum telaufum um 3000 ár aftur í tímann. Þá fóru þeir sem bjuggu í suðvesturhluta Kína að tyggja og borða laufin, á sama hátt og íbúar Eþíópíu byrjuðu að tyggja kaffibaunir, löngu áður en þær voru malaðar og lagað úr þeim kaffi eins og við þekkjum það í dag.

Raunveruleg saga græna tesins hefst þó á áttundu öld, þegar menn uppgötvuð aðferð til að draga úr oxun telaufanna með gufusuðu. Á tólftu öld er svo farið að steikja laufin, en báðar þessar aðferðir gáfu græna teinu þetta ó-oxaða bragð og eru enn notaðar við tevinnslu í dag.

GRÆNU TEIN FRÁ CLIPPER

Á síðari árum hafa vinsældir græna tesins aukist mjög og mikil þróun orðið á framleiðslu þess. Nú er það iðulega blandað öðrum jurtum, til að ná fram sem bestum eiginleikum þess fyrir andlega og líkamlega líðan.

Clipper er nú komið með ótrúlega flott úrval af grænum teum, sem sum hver eru hrein og óblönduð, jafnvel koffínlaus og önnur eru blönduð jurtum eins og engifer, myntu og túrmeriki, sem er styrkjandi fyrir lifrina. Eða þá þau eru blönduð kamillu, lavender og sítrónu, sem er gott fyrir svefninn. Og í hreinsandi teinu (detox) eru ylliblóm (elderflower), nettla, fennel og sítrus.

Þetta er bara brot af teúrvalinu frá Clipper, svo það er um að gera að prófa til að finna rétta bragðið.

GRÆNT TE HEFUR GÓÐ ÁHRIF Á HEILSUNA

Ýmsir halda því fram að grænt te sé heilsusamlegasti drykkur í heimi og ég verð að segja að fyrir utan vatn, er það að öllum líkindum rétt. Það er hlaðið andoxunarefnum sem hafa öflug áhrif á líkamann, bætir heilastarfsemina, eykur fitubrennslu og dregur á líkum á krabbameinum.

Hér er stutt samantekt á helstu eiginleikum þess:

1 – Grænt te er ríkt af jurtaefnum, sem bæði geta dregið úr bólgum og krabbameinum. Það er líka ríkt af flavóníðum (catechin – EGCG), en það eru náttúruleg andoxunarefni sem koma í veg fyrir skemmdir á frumum, draga úr myndum frjálsra stakeinda og vernda frumur og mólekúl fyrir skemmdum.

2 – Grænt hefur góð áhrif á heilann, vegna þess að í því er koffín, þó ekki eins mikið og í kaffi. Það eykur virkni taugafrumna og samþjöppun taugaboðenfa eins og dópamíns og nóradrenalíns. En græna teið gerir meira en kaffi, því það inniheldur líka amínósýruna L-teanine, sem kemst í gegnum heilablóðþröskuldinn. Hún eykur virkni GABA taugaboðefnanna, svo og framleiðslu á dópamíni og alfa-bylgjum í heilanum.

3 – Grænt te örvar meltinguna og eykur fitubrennslu, auk þess sem það bætir líkamlegan styrk.

4 – Andoxunarefnin í grænu te geta dregið úr líkum á ákveðnum krabbameinum, eins og brjóstakrabbameini, blöðruhálskrabbameini og krabbameini í neðsta hluta ristils og við endaþarm.

5 – Grænt te getur veitt heilanum vernd og komið i veg fyrir taugasjúkdóma eins og Alzheimer’s og Parkinson’s sjúkdómana á efri árum. Rannsóknir hafa sýnt að catechin efnin í græna teinu hafa verndandi áhrif á taugafrumur.

CLIPPER KAFFIÐ

Ef þú ert með viðkvæman maga og vilt drekka gott kaffi get ég mælt með lífrænt ræktaða “instant” kaffinu frá Clipper. Ég hef drukkið það í fjölda ára vegna þess að það er eina kaffið sem ég þoli í minn viðkvæma maga. Eitt sinn fékkst það bara í Brauðhúsinu í Grímsbæ, vegna þess að það var eina kaffið sem bakararnir þar drukku, en nú fæst það í flestum stórmörkuðum, líkt og tein.

Það skiptir því ekki máli hvort um kaffi eða te er að ræða, það er alltaf frábært að hafa Clipper í sínum bolla.

Myndir: Af vefsíðu Clipper

Heimildir: Vefsíða Clipper
Grein á Healthline.com

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
  • 591 Posts
  • 0 Comments
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Deila áfram