DÁSAMLEG „HREIN SKÁL“!
Matarbloggarinn þessa vikuna er hún Björg Helen Andrésdóttir, en hún hefur oft sent inn uppskriftir. Við megum eiga von á að minnsta kosti einni á mánuði frá henni á næstunni.
„Skálar“ eru vinsælar og sjálftsagt að útbúa þær heima, en ekki bara kaupa þær tilbúnar á veitingastöðum. Það er gott að geta nýtt sér afganga í skálina sína, en gefum Björg Helen orðið:
Mér finnst svo æðislegt að eiga í ísskápnum eitt og annað, sem ég get nýtt í að búa til svona dásamlega skál. Möguleikarnir eru endalausir þegar kemur að samsetningu og hægt að blanda saman ýmsum hráefnum og gera úr því dásemdar máltíð. Við eldun og samsetningu á þessari skál notaði ég:
kjúklingaupplæri
kínóa
sætar kartöflur
agúrku
Lambhaga salatblöndu
salt
svartan pipar
eðal kjúklingakrydd
olíu
Notið þann hluta kjúklingsins sem ykkur finnst bestur.
Mér finnst upplærin best. Ég set þau í eldfast mót, krydda með Eðal kjúklingakryddi frá Pottagöldrum, salti og pipar og set síðan inn í 180°C heitan ofn í ca 30 mín.
Það má líka skera kjúklingabita eins og til dæmsi bringur niður og steikja á pönnu.
Ég sýð gjarnan ríflega af kínóa þegar ég nota það með mat og krydda með himalajasalt og örlítið af cayenne pipar (má sleppa) út í vatnið, en það má auðvitað nota það krydd sem ykkur finnst gott.
Sætu kartöflurnar sker ég niður eins og franskar kartöflur, set í elfast mót og set ólífuolíu og saltyfir. Hræri aðeins í kartöflunum þannig að olían dreifist vel á þær allar.
Set mótið síðan inn í 190°C heitan ofn í um það bil 45 mínútur. Þegar bökunartíminn er svona hálfnaður er gott að taka fatið út og snúa kartöflunum í því, svo þær bakist jafnt eftir að fatið hefur aftur verið sett inn í ofninn.
Það má bæði raða matnum heitum beint úr ofninum eða nota kalda afganga í skálina, en þegar búið er að raða matnum í hana set ég eftirfarandi dressingu yfir. Hún er ein af mínum uppáhalds og gott að eiga nóg af henni tilbúinni í ísskápnum.
DRESSING sem er góð á allt
INNIHALDSEFNI:
2 dl góð extra virgin ólífuolía
½ – 1 dl vatn (má sleppa)
1 msk Dijon sinnep
1 heill hvítlaukur (þessir litlu kúlulaga)
3-4 cm engiferrót
sítróna
salt
Cayenne pipar (má sleppa)
Þegar ég útbý þessa dressingu finnst mér best að nota krukku með loki sem ég set allt út í og hristi svo dressinguna saman í henni.
Olían, vatnið og sinnepið fara fyrst í krukkuna.
Svo nota ég fínt rifjárn til að rífa niður hvítlaukinn og engiferinn. Ríf einnig börkinn af sítrónunni og kreisti síðan safa úr ½ sítrónu út í.
Set smá salt út í og Cayenne pipar (má sleppa) – hristi saman og dressingin er tilbúin.
Uppskrift og myndir: Björg Helen Andrésdóttir
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar26. mars, 2026TVEIR ÁHRIFAVALDAR
Greinar23. mars, 2026FRÁ FRÆI TIL FRAMVINDU
Greinar21. mars, 2026MERKÚR BREYTIR UM STEFNU
Greinar20. mars, 2026JAFNDÆGUR 20. MARS
