DAGLEGAR ÁSKORANIR

Dagar, vikur og mánuðir þjóta áfram með ógnarhraða og brátt verður árið hálfnað. Ég er því að endurskoða enn einu sinni þær áskoranir sem ég setti mér í upphafi árs. Þetta árið ákvað ég að kalla það sem ég ætlaði mér að ná árangri í áskoranir, en ekki markmið og það hefur gengið nokkuð vel að haka við listann. Ég er búin að fara í raddþjálfun, þótt ég hafi kannski ekki stundað æfingarnar eftir hana nógu vel, en bíllinn hefur þó reynst mjög góður æfingastaður.

Ég hef líka staðið við þá áskorun að skrifa bók og ljúka við hana á tilsettum tíma. Vinnulag mitt er nefnilega þannig að fyrst ákveð ég skiladag og byrja svo að skrifa. Svo er ég búin að ganga á Ásfjall, skrá mig á nokkur námskeið á netinu, sem ég er að stunda reglulega og eitthvað fleira hefur verið hakað af listanum. Ég fyllti hann ekki alveg út í upphafi árs, því ég vissi að ég myndi fara yfir hann nokkrum sinnum, svo að í lok árs hefði mér tekist að mæta 66 mælanlegum áskorunum.

Þar sem markmiðin kallast áskoranir þetta árið, hef ég velti þeim nokkuð fyrir mér og komist að raun um að þær daglegu séu mun meira krefjandi, en til dæmis sú áskorun að ákveða að kaupa miða á tilboði hjá WOW og fara ein til Ísrael, af því mig hefur langað þangað síðan ég var um tvítugt og ekki fengið neinn til að koma með mér.

ÞÆR DAGLEGU MEST KREFJANDI
Undir daglegu áskoranirnar falla hlutir eins og að vakna alltaf á ákveðnum tíma, að fara daglega í gönguferð eða stunda aðra líkamsrækt og að muna að taka bætiefnin bæði kvölds og morgna, ekki bara á morgnana. Daglegu áskoranirnar eru auðvitað mun fleiri, en það eru einmitt þær sem leiða til langtíma árangurs. Stundum finnst okkur allt í lagi að sleppa þeim af því að við erum svo upptekin í vinnunni eða það eru vinir í heimsókn, sem við leyfum að ráðstafa tíma okkar og gleymum að sinna okkur sjálfum.

Og ekki halda að ég þekki þetta ekki allt saman af eigin raun. Þegar ég var að ljúka við síðustu yfirferð eftir prófarkalestur á nýjustu bókinni minni HREINN LÍFSSTÍLL sat ég að langt fram undir miðnætti til að ljúkaverkinu, svo hönnuðurinn gæti byrjað að brjóta um textann næsta morgun. Um hálftólfleytið sendi ég svo póst á prófarkalesarann til að bera undir hana þýðingu á einu orði úr heimildum sem ég var með.

Ég átti nú ekki von á svari fyrr en næsta morgun, en í ljós kom að hún var enn vakandi. Í póstinum sem hún sendi mér til baka stóð: “Ég er hrædd um að frúin fái ekki tveggja tíma svefn fyrir miðnætti þetta kvöldið,” sem var auðvitað alveg rétt hjá henni, en þessi ráðlegging er einmitt í bókinni.

Ég gat ekki varist brosi og afsökun mín var sú að í neyðartilvikum mætti víkja út frá þeirri góðu reglu – en ef neyðartilvikin verða mörg er hætt á að allar daglegar áskoranir fari út í veður og vind.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.

Skráðu þig á PÓSTLISTANN til að geta keypt nýju bókina HREINN LÍFSSTÍLL á tilboðsverði þegar hún fer í sölu og til að fá upplýsingar um námskeið og annað sem aðeins býðst þeim sem á honum eru.