MEGINEFNI GREINARINNAR:
- Astaxanthin er frábært sem innri sólarvörn, þar sem það verndar húðina gegn útfjólubláum sólarskemmdum, eykur teygjanleika hennar, dregur úr fínum hrukkum og eykur rakastig hennar.
- Astaxanthin er talið vera eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar og mælingar hafa sýnt að það sé öflugra en E-vítamín, C-vítamín, beta-karótín og lútein.
- Astaxanthin dregur úr bólgum og nýtist vel gegn nánast hvaða bólguástandi sem er, allt frá liðvandamálum eins og liðagigt, til krabbameina.
- Astaxanthin eykur orku og úthald hjá íþróttamönnum.
Höfundur: Guðrún Bergmann
Fylgstu með daglegum færslum á FACEBOOK eða skráðu þig í HEILSUKLÚBBINN
ASTAXANTHIN ER BESTA SÓLARVÖRNIN
Astaxanthin frá NOW er eitt af þeim bætiefnum sem ég tek inn nokkuð reglulega, einkum og sér í lagi þegar fer að vora eða ef ég er á leið til sólarlanda. Þetta er að mínu mati næringarefni sem allir sólarlandafarar ættu að taka. Astaxanthin verndar gegn skaðlegum geislum sólarinnar og ég verð aldrei jafn fallega brún og þegar ég hef undirbúið húðina með því að taka inn Astaxanthin í einhvern tíma fyrir sólarferð. Að sjálfsögðu tek ég það svo líka á meðan ég er í ferðinni.
Astaxanthin verndar húðina sérstaklega gegn frumudauða sem orsakast af útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar. Ólíkt sólkremum sem borin eru á húðina, blokkar astaxanthin ekki UV geislana, þannig að það kemur ekki í veg fyrir að UVB geislarnir breytist í D–vítamín í húðinni. Það ver húðina einfaldlega gegn skemmdum. Því er best að láta sólina skína óhindraða á húðina í eina klukkustund eða svo, áður en sólarvörn er borin á hana – ef planað er að vera allan daginn í sólinni.
ÖFLUGT OG BREIÐVIRKT ANDOXUNAREFNI
Astaxanthin er skylt beta-karótíni, lúteini og canthaxanthin, þótt einstök sameindauppbygging þess geri það bæði öflugra og einstakara en önnur karótín.
Það er talið vera eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar, er það er unnið úr Haematococcus örþörungum , sem framleiða astaxanthin til að vernda viðkvæma þörungana fyrir sterkum útfjólubláum (UV) geislum sólarinnar og öðru álagi úr umhverfinu. Mælingar á rannsóknastofum hafa sýnt að það er mun öflugra á margan hátt en E-vítamín, C-vítamín, beta-karótín og lútein.
Svona virkar astaxanthin í líkamanum:
- Það nær til allra hluta frumnanna, bæði að utan og innan.
- Það kemst í gegnum heilablóðþröskuldinn til að vernda heilann og taugakerfið.
- Það kemst í gegnum blóðþröskuld sjónhimnunnar til að veita augunum vernd.
- Það hefur áhrif um allan líkamann, í öllum líffærum og í húðinni.
AÐRIR GÓÐIR EIGINLEIKAR
Ólíkt öðrum andoxunarefnum, einkum verksmiðjuunnum karótínum, skortir astaxanthin hæfni til umbreytast í oxandi efni, jafnvel þótt mikið sé tekið inn af því, en slíkt gerist hins vegar hjá ýmsum öðrum andoxandi efnum. Astaxanthin býr yfir ýmsum öðrum eiginleikum en að framan er getið, því það getur:
- Eflt ónæmiskerfið með því að auka mótefni í líkamanum.
- Stuðlað að vernd gegn hjartaáföllum.
- Stuðlað að vernd gegn myndun krabbameinsfrumna.
- Stuðlað að vernd gegn hrörnun augnbotnanna.
- Er vörn gegn Alzheimer’s og Parkinson’s.
- Komið jafnvægi á blóðþrýsting.
- Dregið úr vandamálum í blöðruhálskirtli.
- Aukið varnir líkamans gegn kvefi.
- Komið í veg fyrir og dregið úr sykursýki týpu 2.
- Komið í veg fyrir tannholdssjúkdóma.
- Aukið æxlunargetuna.
- Verndað alla hluta frumna gegn oxandi skemmdum.
Eins og ofangreindur listi sýnir er Astaxanthin eitt af mikilvægari andoxunarefnunum og það sem ætti kannski að setja efst á lista yfir dagleg bætiefni. Nauðsynlegt er að taka það inn sem bætiefni, því það fæst lítið af því úr fæðunni, eða einungis um 2 mg úr 120 g skammti af villtum laxi.
Það tekur Astaxanthin 12-19 klukkustundir að hámarkast í blóðinu og eftir það brotnar það niður á 3-6 klukkustundum. Þess vegna þarf að taka eitt hylki daglega og ef verið er að nota það sem vörn gegn sólinni, en gott að taka það í nokkrar vikur áður en farið er í sólarfrí til að leyfa því að byggjast upp í kerfinu.
FRÁBÆRT FYRIR ÍÞRÓTTAMENN
Margir íþróttamenn nota Astaxanthin, einkum þeir sem þurfa mikið úthald. Hvers konar líkamsrækt framleiðir í eðli sínu frjálsar stakeindir (oxandi efni) í líkamanum. Sem andoxunarefni dregur Astaxanthin úr þeim áhrifum og gerir meira til.
Mesta magn Astaxanthins finnst í vöðvunum á villtum laxi. Vísindamenn leiða að því líkur að þetta rauða efni sé að hluta til ástæðan fyrir hinu mikla úthaldi laxins, þegar hann syndir upp ár og stekkur fossa.
Því nýtist Astaxanthin vel þeim íþróttamönnum sem stunda íþróttir sem gera kröfu um mikið úthald, vegna þess að:
- Það dregur úr frjálsum stakeindum og hraðar því að líkaminn jafni sig eftir álag.
- Það dregur úr framleiðslu og uppsöfnun á mjólkursýru og dregur því úr vöðvaverkjum.
- Það styrkir starfsemi hvatberanna (orkuflutningahluti frumnanna) – en undir áreynslu framleiða hvatberarnir meiri orku. Affleiðing þess er líka framleiðsla á frjálsum stakeindum, en astaxanthin verndar gegn áhrifum þeirra.
Astaxanthin er í raun einstakt meðal andoxunarefna vegna þess að það getur samtímis tekist á við margar tegundir af frjálsum stakeindum, en það er sjaldgæfur eiginleiki meðal andoxunarefna.
ASTAXANTHIN VERNDAR GEGN BÓLGUM
Ofan á alla framangreinda eiginleika bætist svo að Astaxanthin dregur úr bólgum og nýtist vel gegn nánast hvaða bólguástandi sem er í líkamanum. Það á við um bólgur allt frá liðvandamálum eins og liðagigt, hvers konar úlnliðsvandamálum eða tennisolnboga.
Heimildir: www.drmercola.com – www.antioxidants-for-health-and-longevity.com – www.wellnessmama.com
Guðrún Bergmann hefur haldið námskeið og fyrirlestra um náttúrulegar leiðir til betri heilsu í 28 ár. Næstu námskeið hennar eru:
HREINT MATARÆÐI 6. febrúar – örfá sæti laus
7 leiðir til að bæta SVEFNINN 13. febrúar – kvöldnámskeið
Um höfund
- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
- Greinar16. janúar, 2025HVER STJÓRNAR ÞÍNUM LÍKAMA?
- Greinar13. janúar, 2025FULLT TUNGL Í DAG
- Greinar11. janúar, 2025YFIRLIT YFIR ÁRIÐ 2025
- Stjörnuspeki30. desember, 2024NÝTT TUNGL Í STEINGEIT 30.12.24