BJARGVÆTTIR JÓLANNA

Það eru ýmsir sem hafa bjargað jólunum í gegnum tíðina, en nú geta bjargvættirnir verið meltingarensím frá NOW sem redda þeim fyrir þá sem eru með mjólkur- eða glútenóþol. Nú þegar rjómatímabil ársins er skollið á og brauðmeti og freistandi kökur sem aðeins sjást um jólin eru um allt, er oft erfitt að standast freistingarnar. Sé fallið fyrir þeim leiðir það hins vegar í flestum tilvikum til ýmissa heilsufarsvandamála og veikinda sem óskandi er að forðast.

GEGN MJÓLKURÓÞOLI
Þeir sem vilja hvorki missa af rjómalöguðum jólagraut eða ís um jólin geta huggað sig við að það er til bjargvættur, sem getur að öllum líkindum bætt meltingu þeirra og forðað þeim frá eftirköstunum sem óþoli fylgja. Ein helsta orsök mjólkuróþols er vangeta til að melta mjólkursykur sem kallast laktósi, en getur líka tengst erfiðleikum við að melta prótein og fitur sem eru í mjólkurvörum. Í Dairy Digest Complete frá NOW er BioCore Dairy Ultra™ sem er blanda af ensímum, meðal annars próteasi eða próteinkljúf og lípasa, sem klýfur fituna í mjólkurvörum til meltingar. Dairy Digest inniheldur hvorki egg, hnetur né soja.

GEGN GLÚTENÓÞOLI
Glúten getur leynst víða, jafnvel í sósujafnaranum eða í einhverjum tilbúnum réttum jólanna og svo í brauði og kökum. Þeir sem eru með glútenóþol eiga yfirleitt erfitt með að melta glúten í kornmeti. Í Gluten Digest frá NOW er að finna BioCore® sem er blanda af öflugum ensímum sem auðvelda meltingu á korni, meðal annars DPP IV (Dipeptidyl peptidase IV). Þetta er einstök ensímblanda sem vinnur sérstaklega á prólínsamböndum sem eru í kornpróteinum. Í Gluten Digest er líka að finna próteasa og amýlasa, sem er mjölvakljúfur og vinnur á kolvetnasamböndum sem oft eru til staðar í öllu kornmeti. Gluten Digest inniheldur hvorki mjólk, egg né soja, er ekki unnið úr erfðabreyttum vörum og er án glútens.

Best er auðvitað að forðast þær fæðutegundir sem valda óþoli eða ofnæmi, en sé freistingin svo mikil að fallið sé fyrir henni, er hægt að grípa til þessara bjargvætta, sem geta hugsanlega reddað jólunum. Gluten Digest og Dairy Digest er hægt að fá í lyfjabúðum.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni á endilega með öðrum.

Skráðu þig á PÓSTLISTANN MINN að fylgjast með greinum mínum og tilboðum á vörum og námskeiðum.

image_print

Um höfund

Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Deila áfram