AMMA HEFÐI KALLAÐ ÞETTA KLATTA

Ég á góðar minningar úr barnæsku frá heimsóknum til Guðrúnar ömmu minnar. Hún var ólöt við að skella saman í klatta eða pönsur, sem þá gjarnan voru úðaðar með sykri og rennt niður með mjólkurglasi. Nú er hvorki mjólkinni né sykrinum til að dreifa í mataræði mínu, en klattaminningin lifir samt enn.

Áherslur í eldamennsku hafa svo sannarlega breyst og nú er gjarnan talað um gömlu klattana sem amerískar pönnukökur, jafnvel þótt þær séu ekki bakaðar í sömu stærð og þeir í Ameríkunni gera.

Mér finnst frábært að skella saman í ameríska klatta (hef ákveðið að halda í bæði klattana og það ameríska) annað slagið um helgar og breyta þannig aðeins út frá morgunmatnum, sem almennt er annað hvort grænn djús eða ávaxta- og próteinhristingur.

Uppskriftir að glúten- og mjólkurlausum amerísku klöttum þróast og breytast eftir því hvaða mjöl ég á til hverju sinni og hvað það er sem mig langar að prófa að bæta í deigið. Hér er samt ágætis grunnur að  til að vinna með:

  • 1 bolli rísmjöli frá Ma Vie Sans Gluten
  • 1 bolli Quiona mjöl frá Nature Crops
  • 1 tsk matarsódi
  • 2 tsk vínsteinslyftiduft
  • fínt himalajasalt eftir smekk
  • 2 tsk Ceylon-kanill
  • 2 tsk vanilludropar frá Ellyndale
  • 2 vel þroskaðir bananar –eða – 2 egg fyrir þá sem þola þau
  • 2 tsk Husk flögur frá NOW – blandaðar í 1 dl heitt vatn
  • 1½ msk ólífuolía
  • 1 msk agave síróp eða akasíuhunang
  • 1½–2 bollar sykurlaus Isola-rísmjólk – blandað saman við smátt og smátt svo deigið verði ekki of þunnt

Svo má bæta ýmsu í þennan grunn eins og til dæmis;

  • 50 g gróft söxuðum valhnetukjörnum
  • 2–3 msk af kakónibbum
  • 1-2 msk af soðnum köldum hrísgrjónum (gæti þurft að bæta meiri vökva þá í deigið)
  • í stað kanils má setja krydd eins og múskat

AÐFERÐ:

  • Blandið öllum þurrefnunum saman í hrærivélarskál og hrærið saman stutta stund.
  • Setjið banana og allan vökva í blandarann og blandið vel saman.
  • Hellið vökvanum varlega út í þurrefnin og hrærið deigið vel saman á meðalhraða.
  • Ef valhnetubitar og kakónibbur fá að fljóta með, blandið þeim þá varlega út í deigið með sleikju.
  • Gott er að láta deigið standa aðeins áður en bakað er, jafnvel yfir nótt. Sé það gert þarf stundum að bæta meiri rísmjólk út í um leið og það er hrært upp fyrir bakstur.
  • Steikið amerísku klattana á meðalheitri pönnu þar til það myndast loftbólur á þeim. Snúið þeim þá við og steikið hinum megin – eða fjárfestið í Crep’Party-rafmagnshellunni hjá Ormsson, þar sem allir við borðið geta bakað sína amerísku klatta sjálfir.
  • Hugmynd! Amerísku klattarnir eru dásamlegir með kókosolíu og sykurlausu sultunni frá St. Dalfour eða bláberjum. Einnig má setja á þá frjóduft (bee pollen) og örlítið af dökku agavesírópi – sem er æðislegt saman.

Ef þér fannst þessi uppskrift spennandi, deildu henni þá endilega með öðrum ☺

Svo má alltaf skrá sig á PÓSTLISTANN minn en þá færðu greinar, tilboð og upplýsingar um námskeið og fyrirlestra sent til þín.