#stjörnuspeki #astrology
Hér á eftir fylgir póstur af Facebook síðunni hennar @Pam Gregory, sem ég hef snúið á íslensku.
“Nóvember lofar að verða viðburðaríkur mánuður, og þessi vika er sérstaklega kraftmikil þar sem við stefnum að næsta fullu ofurmána ársins á 13 gráðum og 22 mínútum í Nauti þann 5. nóvember.
Ég býst við að margt komi í ljós í þessum mánuði því það myndast toppur í kringum nýja Tunglið í Sporðdrekanum þann 20. nóvember og svo áfram eftir það. Í framhaldi af stuttri yfirferð minni um stjörnukort Andrésar (áður prins), er rétt að benda á að þann 30. október, þegar tilkynningin barst frá Buckinghamhöll um að Andrés yrði sviptur öllum titlum sínum, heiðri og dvöl í konungsbústaðnum í Windsor (Sólarbogi Úranusar í samstöðu við IC (heimili) í kortinu hans, þá var Mars í transit á 26 gráðum Sporðdrekanum í 180 gráðu andstöðu við fastastjörnu Algól. Sú stjarna tengist goðsögninni um að „missa höfuðið“. Það getur verið í þeim skilningi að fólk verði brjálað, eða verði bókstaflega afhöfðað (þó það sé sem betur fer sjaldgæft!), en birtist venjulega í því að fólk sem þekkt er, eða er í háum stöðum, missa stöðu sína. Þetta er mjög augljóst dæmi um það. Það er svo margt fleira í vændum í tengslum við fólk, sem missir stöðu sína ef það hefur ekki starfað af heilindum.
Hafið í huga að frá lokum desember fram í byrjun marsmánaðar mun Úranus í transit vera innan við einni gráðu frá Algol sem er á 26 gráðum og 25mínútum í Nautinu. Þetta verður því mjög áhugavert tímabil að fylgjast með.
Mars er nú þegar á 28 gráðum í Sporðdrekanum í utan merkja andstöðu við Úranusar í 0 gráðu Tvíburum. Sú afstaða verður nákvæm þann 4. nóvember, þegar Mars fer inn í Bogmanninn. Þessi andstaða er virk út alla vikuna.
ELDFIMUR ÞÁTTUR
Þessi sprengi- og eldfimni þáttur getur birst á marga vegu. Sterkar afstöður á milli Mars og Úranusar eru dæmigerð merki um aukna jarðskjálftavirkni, og getur táknað stjórnmálalega, félagslega eða fjárhagslega jarðskjálfta sem og umhverfislega. Meiri möguleiki er á truflunum á flugi (Bogmaðurinn er tengdur flugi, en Úranus og Vatnsberinn tengjast flugi með „verkfræðilegri“ afstöðu). Einnig gætu verið netárásir, rafmagnsleysi, internettengingarleysi o.s.frv. Mars í Bogmanninum getur verið mjög skoðanafastur þar sem áherslan á sannleikann er of mikil, sérstaklega þegar hann er í andstöðu við Úranus, þannig að við gætum séð meiri trúarlega (Bogmaðurinn) grundvallarhyggju koma fram á þessum tíma.
Vinsamlegast vertu róleg/ur, friðsæl/ur og taktu þér tíma í kyrrð og þögn eins oft og þú getur. Þetta mun hjálpa til við að losa um alla orku sem þú gætir fundið fyrir vegna atburðarásar sem getur verið hröð. Kyrrðin er líka frábær staður til að finna núllpunkt guðlegs hlutleysis til að skapa frá.
FJÖGUR KÓRÓNUGOS
Nýlega hafa verið fjögur kórónugos hinum megin á Sólinni í átt að 3I-Atlas, sem hefur aukið orku þessarar „veru“. Þessir stóru Sólblettir, sem geta sent CME (gosefnin) í átt að á næstu dögum. Það getur valdið jarðsegulstormum, þar sem rafsegulsviðið verður óstöðugra. Aftur, verið róleg, drekkið mikið vatn, hugleiðið, jarðtengið ykkur, verið í náttúrunni og faðmið tré og fólk (!). Munið að Ofurmáninn er í Nauti, en það veitir stöðugleika og beinir sjónum okkar aftur til einfaldleika náttúrunnar. Venus, stjórnandi þessa fulla Ofurmána, er í samstöðu við Haumea, en Alan Clay hjá Dwarf Planet háskólanum lýsir orkunni frá Haumen sem hvöt til einingarvitundar.
3I-ATLAS Í SAMSTÖÐU VIÐ VENUS
Í dag, 3. nóvember, verður 3I-Atlas næst Venusi. Við vitum ekki hvaða áhrif þetta mun hafa þar sem það hefur aldrei gerst áður, en þessi hraðskreiða “vera” virðist hafa einhvers konar stækkunaráhrif, sérstaklega á jákvæða orku. Þrátt fyrir það sem er að gerast í óstöðugri þriðju víddinni þessa vikuna, finnur þú fyrir raunverulegri breytingu á orkunni undir yfiborðinu. Breytingu á undirliggjandi meðvitund um kærleika, samkennd og samúð? Ég geri það svo sannarlega og margir eru að greina frá þessu. Mun þetta aukast þegar 3I-Atlas fer framhjá Venusi?
KÆRLEIKUR OG GLEÐI
Pam segist hafa djúpa tilfinningu fyrir því að við séum að fara í gegnum djúpa meðvitundarbreytingu sem er grundvallaratriði fyrir allt sem birtist í áþreifanlegum heimi okkar. Getum við einbeitt orku okkar og athygli að þessu, til að magna þessa eiginleika kærleika, gleði, samkennd, frið, þakklæti og frelsi – í heiminum okkar? Sennilega er ekkert mikilvægara en að vinna sameiginlega að því núna.
“ÞARNA ÚTI” OG “HÉRNA INNI”
Munið að stjörnuspeki er ekki bara rannsókn á því sem er að gerast „þarna úti“. Hún er líka rannsókn á því sem er að gerast „hérna inni“, og því meira sem við getum breytt sjónarhorni okkar til að meta raunverulega hvernig við sem mannkyn fléttumst saman í samsköpun með orku plánetumynstra, því meira stígum við einnig inn í okkar eigið fullveldi. Nokkrir einstaklingar sem ég met mikils, þar á meðal Dr. David Clements, hafa sagt að við hefðum ekki getað komist á þennan punkt, þennan vendipunkt að mínu mati, án hollrar viðleitni mannkynsins til að auka meðvitund sína.
SÉRHVER SEM ÞETTA LES
Sérhvert ykkar sem les þetta hefur lagt sitt af mörkum. Sérhver lítil gjörð góðvildar, þolinmæði, kærleika og skilnings hefur breytt ástandinu til hins betra.
Þakka ykkur fyrir að vera með mér í þessari ferð. Þetta er ótrúlega spennandi tími til að vera á lífi, þrátt fyrir það sem við sjáum í ytra umhverfinu þegar gömul kerfi eru að hrynja, leyfum við því að gerast. Látbragðsleikurinn gæti orðið bilaðri samhliða því að orkan sem að baki liggur er að springa. Kyrrlátt, ástríkt fólk um allan heim er að byggja upp nýtt ljósnet á hærri tíðni, og nýtur við það stuðnings frá nýjum ljóskóðum sem koma frá vetrarbrautinni okkar og Sólinni, til að skapa kærleiksríkari heim, og það er það sem margir eru farnir að finna sterkt fyrir núna.
Brosið til ókunnugra, hjálpið fólki yfir götuna, notið möntru eins og „getur þetta orðið betra” og sjáið smám saman hvernig veruleiki ykkar breytist. Orka ársins 2026 virðist ætla að verða mjög frábrugðin þessu, sérstaklega frá og með maí. Þetta eru ótrúlega hraðar framfarir. Notið orku ykkar til að skapa hið nýja, frekar en að halda lífi í því sem er að deyja. Við erum að rokka þetta.”
Pam Gregory hefur hvatt fólk til að sameinast í hugleiðslu og bæn alla daga kl. 19:00. Við erum á sama tíma og England, svo við getum tekið þátt á þessum tíma dags. Deilið endilega þessum pósti sem víðast, til dæmis á tímalínuna ykkar.
STJÖRNUKORT: Ef þú átt ekki stjörnukort, sem þú getur notað til að skoða hvernig pláneturnar eru að hafa áhrif á þig persónulega, geturðu pantað kort með því að SMELLA HÉR
Mynd: Shutterstock.com
Um höfund

- Guðrún Bergmann
- Guðrún Bergmann hefur í rúm 30 ár verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Sjá nánar
Síðustu færslur
Greinar5. nóvember, 2026MAGNESÍUM ER MIKILVÆGT
Greinar1. nóvember, 2026NÓVEMBER – LJÓSIÐ VIÐ ENDA GANGANNA
Greinar28. október, 2026MIKILVÆGI LIFRAR
Greinar25. október, 2026ÞETTA ENDAR MEÐ ÞÉR
