
NÝTT TUNGL Í FISKUM
Nýja Tunglið þann 19. mars 2026 er á tuttugu og átta gráðum í Fiskum og er í samstöðu við stjórnanda sinn, Neptúnus. Nýja Tunglið og Neptúnus mynda topp á þríhyrningi með Plútó í Vatnsbera og Úranusi í Nautinu.
Þar sem nýja Tunglið er virkjað af öllum ytri plánetunum fylgir því tilfinning um að margir ferlar sameinist í eina stund skilnings eða fullkomnunar.
Allar leiðir liggja að þessu nýja Tungli! Tuttugu og átta gráður í Fiskum eru alveg á síðustu gráðum stjörnumerkjahringsins. Við erum enn í vatninu. En við erum líka mjög, mjög nálægt ströndinni. Við sjáum land framundan, heyrum hljóð og finnum að við erum að nálgast einhvern áfangastað.